Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Tinym
Tinym Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
206 stig
!shamoa maaphukka!

Afleiðingar (6 álit)

í Smásögur fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég er búinn að setja þessa sögu inn á rithring líka en ákvað að fá einnig comment hér. Það skín á lögreglumerkið hans. Hann kremur lítinn miða í hendinni og gengur inn stíginn að húsinu. Það er frekar lítið og nett en hefur greinilega kostað sitt. Garðurinn í kring er umlukinn sólskini sem fellur á nývökvað grasið ogtréð sem stendur eins og tveim metrum frá stígnum inn í garðinum. Lögreglumaðurinn gengur treglega að húsinu og styður á hnappinn að bjöllunni. Hann reynir að koma reglu á þær...

Reggie Miller -ofmetinn? (13 álit)

í Körfubolti fyrir 19 árum
Ég geri mér grein fyrir því að ég er að fara inn á hættulegt svæði með það að gagnrýna einhvern vinælasta körfuboltamann NBA í dag, en ég hef þó nokkuð til mín máls og er alls ekki að fæla fólk frá því að segja sína eigin skoðun á málinu það er þvert á móti velkomið. Til að byrja með verður að taka til greina val í svokalla Nba first team, second team og third team. Allar stórstjörnur sem voru “uppi” á bestu árum Reggie hafa fengið sæti í þó nokkrum liðum. Ef við tökum mann sem er enn að...

gömul demó (4 álit)

í Háhraði fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Er ekki hægt að finna gömlu demóin á síðunni?

Körfubolti (0 álit)

í Körfubolti fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Kobe treður með tilþrifum í leik á móti Indiana. Reggie Miller sést í bakgrunni.

The prequel: Tryggingar ( handritið) (10 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Handritið hefur fengið viðeigandi nafn og hef ég lokið við söguna. Handritið er þó enn langt frá því að vera tilbúið. Ég hef ekki bætt það sem einhver benti mér frá því síðast en ég held ég hafi gert nokkuð í þvi í nýjasta hlutanum sem er efmarkaður með striki. Góða skemmtun The prequel: Tryggingar Úti, miðbærinn um nótt: (my way með Frank sinatra hjómar) Ungur maður, svart hár, klæddur í jakkaföt (með bláa slaufu með hringmunstri) ráfar um bæinn. Hann er meiddur, ein höndin hengur líflaus...

Seinni gullaldarár lakers runninn á enda? (28 álit)

í Körfubolti fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Lakers menn vilja ekki íhuga verstu mögulegu útkomu þessa tímabils: Kobe í ævilangt fangelsi og á aldrei eftir að spila atvinnu körfubolta á ævi sinni aftur, Shaq farinn, Phil Jackson farinn, Gary Payton og Malone réttilega farnir á elliheimili, eftir niðurlægandi ósigur í úrslitum nba. Rookie draft á næsta ári. Þetta getur ekki gerst er það? Þetta getur gerst en það er ekki líklegt. Íhugum málin ef Kobe fer ekki í fangelsi því þá flækjast málin. Ef Shaq og Jackson fara ekki fer kobe en ef...

Handrit 2.hluti (ekki alveg tilbúið) (4 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
þAð var fyrir nokkru síðan sem ég sendi óklárað handrit hérna inn. Ég hef ekki klárað það en ég er kominn nokkuð langt. Eins og áður þá sendi ég þetta inn fyrir svona “feedback” til að sjá hvort ég sé á réttri leið, að gera góða hlutir eða hvort ég sé einfaldlega í ruglinu. Góða skemmtun Úti, miðbærinn um nótt: (my way með Frank sinatra hjómar) Ungur maður, svart hár, klæddur í jakkaföt (með bláa slaufu með hringmunstri) ráfar um bæinn. Hann er meiddur, ein höndin hengur líflaus niður með...

Góðir leikmenn (3 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum
Ég veit að það er hægt að nálgast þessar upplýsingar annars staðar en hvaða ungu leikmenn er gott að kaupa og þá er ég ekki að tala um Cristiano Ronaldo og envandro gaurinn sem er að vísu ekki í mínum leik (bad sjitt).

Why you gotta say nasty shit Ray? Cos' i'm a nasty motherfucker.

Lítil saga um vonsku sólar (4 álit)

í Smásögur fyrir 20 árum
Grasið glóir næstum í blikandi sólskini almáttugrar sólarinnar um leið og sandalar kremja það niður þar til það rís á ný. Trén gnæfa yfir einmana mannverunni sem gengur um samkomu náttúrunnar. Það er í kringum þau sem sólin skín. Mannveran sem er smá í samanburði við yfirgnæfandi náttúruna er niðurlút og langt hárið verndar dýrmæt augun fyrir fyrir geislum sólarinnar. Hendur í vösum, hægt göngulag og flaksandi hár í vindi eilífðarinnar lýsa hugarástandi konunnar. Sólin hverfur fyrir aftan...

Spurning um CM 4 (2 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 1 mánuði
ég er frekar nýr í þessu cm dæmi en ég ætlaði að spyrja að því hvort maður gæti sagt eitthvað við leikmennina eða gefið út eitthvað statement þegar það gengur illa (eins og hjá mér núna).

Why you gotta say nasty shit Ray? Cos' i'm a nasty motherfucker.

Gamlar 8mm (1 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Hvar er hægt að fá svona gamlar 8mm vélar?

Why you gotta say nasty shit Ray? Cos' i'm a nasty motherfucker.

Handrit (16 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég geri mér grein fyrir því að þetta á kannski heima á kork en það nennir enginn að lesa eitthvað svona langt á korki. Þetta er sem sagt handrit sem ég er að vinna að vill fá smá “feedback” á. Úti, miðbærinn um nótt: (my way með Frank sinatra hjómar) Ungur maður, svart hár og svart skegg klæddur í jakkaföt (með bláa slaufu með hringmunstri) ráfar um bæinn. Hann er meiddur, ein höndin hengur líflaus niður með síðunni en hin heldur um sár á maganum. Hann ráfar inn um húsasund og dettur niður...

Stelpan í strætóskýlinu (18 álit)

í Smásögur fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Stelpan í strætóskýlinu Hún skelfur af kulda enda er alltaf mjög kalt á morgnana, sérstaklega klukkan hálfsjö. Hún rennir höndunum af gömlum vana í gegnum heygult hárið þrátt fyrir að kuldinn nísti í gegnum bein. Þá seilist höndin ofan í beige litaða veskið sem er í stíl við dragtina og sokkabuxurnar og skóna. Hendurnar draga titrandi upp sígarettu pakka. Það er ein eftir, sú síðasta í lífi hennar þó hún viti það ekki veit ég það. Hún kveikir í með eldspýtum sem hún fékk á skemmtistað fyrir...

hvað sem er (0 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég hef ekki “postað” rímu hér inn lengi, svo ég ákvað að láta slag standa núna og senda bara eitt stykki inn. some say I'm a good lyricist others ay I have the silver fist I step through the mist with my sack and deuce in spite my lack of juice drink it all I dont care link it all, rhymes I mean I'm a mean machine, wish I'd have enough green to buy a tv with the widescreen watch the fight scene, in fight club I might just, recreate it hit myself again and again this is the message i send I...

Tapað-fundið (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
-Svo martröðin heldur allaf áfram? -Já, alltaf eins, hestur hneggjar, brothljóð þá sé ég rautt og síðan heyrist endalaust bíl flaut þangað til að ég vakna. -Allt sem ég get sagt þér er að þetta bendir allt til þess að þú hafir orðið fyrir alvarlegu áfalli þegar þú varst ung. -Eins og ég hef sagt áður þá kemur mér bara eitt til hugar og það er þegar Pabbi dó. En ég man ekki einu sinni hvernig það gerðist. -Þetta er mjög dular….. Sálfræðingurinn náði ekki að klára setninguna þar sem...

Timesplitters 2-Challenge (2 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég er að klikkast í seinasta apa challenginu, þar sem maður á að skjóta apana uppi á stíflunni og þarf að ná eitthvað 4000 stigum til að ná bronsi!!!!! Vitiði um einhverja sérstaka aðferð til að gera þetta?

I'll see you in hell……… from heaven.

Heimurinn minn (4 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég er ekki alveg horfinn heilum hug Því hugurinn er ekki heill og ekki horfinn Og ég er ekki þannig að bíði eftir manninum með orfinn Reyni að lifa lífinu, hvað er ennað hægt að gera? Nema að deyja því annars Í því fellst að horfa á Hana-bi: bannað Því skoteldaldar eru hættulegir:sannað Flest allt er kannað svo ég bý til nýjan heim Þar sem að berjast við risa skordýr er dagleg rútína Og ferðast úti geim Sem risa rúsína Ég rokka heminn minn harðast Allir þar mig forðast Þar mér vefst aldrei...

Time splitters2 (13 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Getur einhver sagt hvenær Time splitters 2 kemur til Íslands? Takk Fyrir

I'll see you in hell……… from heaven.

Skugginn í Kjarrinu 2 (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Í eldhúsinu var líka allt á fullu enda átti líka að elda mat ofan í allt ríkið. Yfirkokkurinn Davina Angles var orðin mjög stressuð yfir því að ná kannski ekki að elda matinn. Hún var orðin svo þreytt að hún ákvað að ganga út og kveikja sér í sígarettu. Hún opnaði hurðina út í garðinn og gekk upp steintröppurnar sem lágu upp í garðinn beint frá útidyrum eldhússins. Hún heyrði tvær raddir berast frá glugganum sem sneri út í garðinn, henni heyrðist þetta vera Herra Fýr og Malik. Hún tók upp...

Skugginn í kjarrinu 1 (3 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Forvitni lá í loftinu, menn, konur og börn hvísluðu í eyra hvors annars tröllasögur um ástæðu þess að þau væru öll komin saman í ræðusal keisarans. Ein hljóðaði svo að keisarinn væri að deyja, önnur að móðir keisarans væri snúinn aftur frá dauðanum og sú þriðja og lang líklegasta að mati Herra Fýs yfirþjóns keisaradæmisins að þau væru að fara í stríð. Herra Fýr hafði lifað í gegnum mörg ár í keisaradæminu, unnið sig frá því að bera fram drykki upp í stöðu yfirþjóns. Seinast þegar keisarinn...

Bara (0 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hvað finnst ykkur, finnst ykkur þetta gott? ég vil ekki sigla á brott og ég bið bara um eitt, ekki vera með þetta glott, það fer að verða leitt en ég bið bara, ég gæti engan meitt og til að tala um eitthvað annað, já bara eitthvað annað tölum þá um dönsku stíla eh, nei en hvað um sænska bíla æ ég veit ekki ég bara veit ekki ó, átti ég að líta, ég bara leit ekki Dömur og herra mínir ég er í skotgröfinni, að eyða viðkvæmninni af því það er svo skemmtilegt en allavega, ég er að kynna það, henda...

Morðið (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Þarna er húsið hans eins stórt og það er, eins stór og helvítis garðurinn er. Hann er greinilega illa liðinn þetta var í fyrsta skipti sem ég fékk tvö verkefni um að drepa sama manninn. Bæði frá núverandi og fyrrverandi eiginkonum, eru greinilega báðar í erfðaskránni. Leigumorðinginn hafði skipulagt morðið í mánuð, setið í bílnum fyrir utan húsið í tvær vikur og skoðað stöður varðanna, hverjir eru latir, hverjir eru traustirog til hverja er hægt að ná. Leigumorðinginn hafði nefnilega náð til...

Grafík (7 álit)

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég hef tekið eftir því í bestu leikjum dagsins í dag að þeir treysta eiginlega ekkert á grafík þótt það sé ROSALEG grafík í þessum leikjunum. Ég tek Metal gear solid 2 sem dæmi en hann er með svakalega grafík, samt sem áður þá gæti hann alveg verið með eins grafík og fyrri leikurinn og verið alveg jafn góður. Eini munurinn á grafíkinni er að hún er miklu meira “smooth”. Að vísu þá myndi enginn sætta sig við það að Ps2 leikur lyti út eins og PSone leikur. Gran Turismo 3 er annað dæmi í þessum...

Áformin. Hluti 1-2 (0 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hérna eru fyrstu annar hluti fyrst smásögunnar minnar. Ég var ekki alveg viss um hvar ég hætti seinast og það er svo langt síðan ég setti hinn hlutann inn svo ég setti þá saman þótt þetta sé sama sagan. Eins og með hinn hlutann mæli ég með því að þið cópýið þetta inn á tölvuna og jafnvel prentið út. Góða skemmtun. Reykjavík, 7. Júní, 1954 Eftir allt sem mannfólkið hafði þolað var komið að því, þetta var endirinn. Kjarnorkustríð hafði geisað milli stórveldanna tveggja; Rússlands og...

ríma á íslensku (0 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þessi ríma er eiginlega bara grín, til að láta ykkur vita. Þegar ég geng út á götu heyri ég fólk spyrja Daz (daz) hvað ætlarðu að gera?/Ég ætla að láta fólk fá það sem það hefur verið að bíða eftir að heyra./Ég er óþekkur af áráttu, ekki af því ég hata þig/ fyrst þú slefar svona leyf mér þá að mata þig/Ég er það góður að fólk er farið að kalla mig séra/Aðrir spyrja mig hvað ég hef til brunns að bera Svo sem ekki neitt/Það þýðir ekki að það sé leitt/og til að láta þig vita hef ég aldei neinn...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok