Hvað finnst ykkur,
finnst ykkur þetta gott?
ég vil ekki sigla á brott
og ég bið bara um eitt,
ekki vera með þetta glott,
það fer að verða leitt
en ég bið bara, ég gæti engan meitt
og til að tala um eitthvað annað,
já bara eitthvað annað
tölum þá um dönsku stíla
eh, nei en hvað um sænska bíla
æ ég veit ekki
ég bara veit ekki
ó, átti ég að líta,
ég bara leit ekki

Dömur og herra mínir
ég er í skotgröfinni,
að eyða viðkvæmninni
af því það er svo skemmtilegt
en allavega, ég er að kynna það,
henda smá safa í það
veð skítinn svo þið getið hafist að þar
en það er mínúta núna,
bara mínúta núna
smá endurákvörðun,
vona að þið fílið mig núna
því þetta er hinn nýji ég,
fer uppí hið nýja tré
vona að þið getið séð mig
til að ég geti verið með.
kenni ekki áhangendunum um það,
ef ég eignast einhverja
fór til Sómalíu þar sem þeir biðja um þetta

Hvað finnst ykkur
finnst ykkur þetta gott
ég vil ekki brokka á brott
allavega ekki strax
ég er að reyna að gera'etta flott
setja mælinn í meira en í max
það er að segja, hámarksálag
og trúðu mér, það er hægt
allavega ef að ríma er þitt fag
er þessu ekki frá bægt
æ, ég veit ekki
ég bara veit ekki
úff, átti ég að líta
sorry, ég bara leit ekki

Segji ekki að ég sé að rappa
meira svona að flæða,
ekki að rífast,
meira svona að ræða
þótt ykkur finnist það,
er ég engan að hæða
er að gera svo mikið,
læt á mörgu mæða
er engan að meiða,
meira svona að særa.
nú eru endalokin
bara endalokin
nú er ég burtu fokinn
á vit annara ævintýra
í eitthvað sem er eingin vitglæta
frekar en í öðru sem ég geri
beðinn að sækja vatn,
þá ég brunninn burtu beri
dömur og herra minir
nú segji ég bless
ég segji bara bless
og hvað sem þið gerið, verið ávallt hress

Hvað finnst ykkur svo um þetta? <br><br>I'll see you in hell………
from heaven.
!shamoa maaphukka!