Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

TAT
TAT Notandi frá fornöld 78 stig

Re: Vestmannaeyjar um Verslunarmannahelgi

í Flug fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég vill nú nota tækifærið og benda þeim flugmönnum sem að ætla að fara til VM á annað borð, að það er fínt að koma í Múlakotið yfir helgina og hoppa svo til Eyja á sunnudeginum !

Re: Múlakot 2002

í Flug fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Þar sem að Múlakotshátíðin er á næsta leiti, þá var ákveðið að gefa út dagskrá og upplýsingar um hátíðina. Hafir þú einhverjar frekari spurningar, hikaðu þá ekki við að senda póst á tyrfi@flugmalafelag.is Ath. Síðari hluti listflugskeppninnar verður haldinn í Múlakoti. Tímasetning keppninnar verður auglýst síðar. Fimmtudagur Svæðið opnar Sett verður upp samkomutjald og söluturn Föstudagur 21:00 kvöldvaka Laugardagur 13:00 Lendingarkeppni (skráning í söluturni) 15:00 Leikir 19:30 Kvöldverður...

Re: Múlakot 2002

í Flug fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Það er gaman að heyra að fallhlífarstökkvararnir koma. Ég vona að sem flestir komi, enda allir velkomnir fljúgandi sem akandi ! Það verður sennilega fínt fyrir Oshkosh-farana að koma í Múlakot og “gíra sig niður”. Sjáumst hress í kotinu !

Re: Hvað er Flugmálafélag Íslands ?

í Flug fyrir 22 árum
Greiðslur aðildarfélaga til FMÍ fara eftir félagafjölda, það þýðir þó ekki endilega að það sé greitt per félagsmann heldur fjölda félagsmanna, t.d. ákveðið gjald fyrir 10-20 manns og svo annað gjald fyrir 30-40 manns. Ný Heimasíða FMÍ mun verða sett á vefinn í júní, og mun verðskráin sennilega verða þar ásamt öðrum upplýsingum um félagið. Ef að einhver hefur ábendingar um efni á nýja vefinn hjá FMÍ, þá endilega sendið okkur línu á fmi@flugmalafelag.is

Re: Hver hefur gert mest fyrir einkaflugið á s. árum?

í Flug fyrir 22 árum
Það er alveg rétt að heimasíðan hefur legið niðri og ekki verið uppfærð. En breytingar á síðunni eru væntanlegar fyrir lok júní, en þá kemur ný heimasíða. Eins og ég nefndi annarsstaðar á vefnum, þá eru kosningar nýrrar stjórnar FÍE í nánd. Allir sem hafa áhuga á að rífa upp félagið og gera góða hluti í félagslífinu í sumar eru hvattir til að hafa samband við okkur á fmi@flugmalafelag.is

Re: Flugið

í Flug fyrir 22 árum
Ég heyrði að stefnan væri að gefa út þriðja blaðið núna í vor.

Re: Hvað er Flugmálafélag Íslands ?

í Flug fyrir 22 árum
Fyrir það fyrsta, þá gerði ég ekki könnunina ! Ég sá bara að umræður um FMÍ voru ekki á réttum grundvelli og ákvað því að leiðrétta allann misskilning. Þó má segja að allir sem skráðir eru í félag sem aðtilheyrir FMÍ, séu þar af leiðandi félagar í FMÍ.

Re: Hver hefur gert mest fyrir einkaflugið á s. árum?

í Flug fyrir 22 árum
Ársgjaldið í FÍE er Kr.5,000,- eða kr.416,66 á mánuði. Ég er farinn að halda að þetta sé vítahringur, menn vilja ekki borga félagsgjöldin af því að þeir fá ekkert í staðinn og FÍE getur lítið gert án peninganna. Ef að þú vilt skrá þig í FÍE, sendu þá póst á fmi@flugmalafelag.is, einnig ef að þú hefur ábendingar eða ert tilbúinn að vinna að félagsstarfi í sumar. Einnig má benda á að kosningar í stjórn FÍE eru í nánd, ef að þú hefur áhuga á að bjóða þig fram láttu þá í þér heyra ! Það er alveg...

Re: Hver hefur gert mest fyrir einkaflugið á s. árum?

í Flug fyrir 22 árum
Það er nú svolítið sorglegt að sjá menn sparka í liggjandi menn (FÍE)! Mjög fáir “félagsmenn” hafa greitt félagsgjöldin sín, þó vilja allir að eitthvað sé gert fyrir þá ! Hvernig væri að allir færu að greiða félagsgjöldin, svo að hægt sé að fara að gera eitthvað fyrir félagsmenn FÍE ! Eins og flestir vita, þá væla þeir mest sem borga minnst !

Re: svartar á lit?

í Flug fyrir 22 árum
Ég hef séð alveg svartar flugvélar, því efast ég um að það sé bannað !

Re: EAA-Airventure Flugsýningin í Oshkosh

í Flug fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég vill benda fólki sem að veigrar sér við að fara vegna kostnaðar við gistingu að hægt er að tjalda á svæðinu, en hreinlætis og sturtuaðstaða er á svæðinu. Skipulagðar tjaldbúðir verða fyrir Íslendinga inni á svæðinu, þar sem að þú getur komið með þitt tjald og tjaldað. Að sjálfsögðu verða tjaldbúðirnar með Íslenskum hætti, þ.e. kvöldvaka með varðeldi, gítarspili og söng.

Re: Flugvöllur á Laugarvatni !!!!!!!!!

í Flug fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég er sammála þessum jákvæðu skrifum hér um að gera flugvöll á Laugarvatni. Það er aldrei of mikið af flugvöllum. Þetta væri sérstaklega fínt ef hægt væri að hafa völlinn í göngufæri frá byggðinni.

Re: Ferð á Oshkosh

í Flug fyrir 22 árum, 1 mánuði
Verðið hefur ekki verið endanlega ákveðið, en eins og ég segi, þá verður þetta auglýst fljótlega !

Re: Ferð á Oshkosh

í Flug fyrir 22 árum, 1 mánuði
Flogið verður út fimmtudaginn 25.júlí og komið heim mánudaginn 29.júlí. Og þá hefur maður vikuna til að pakka niður fyir Múlakot helgina eftir. Hægt verður að fá gistingu í nágrenni við svæðið eða gista í tjaldi á svæðinu. Í ferðinni verða vanir fararstjórar. Ferðin verður auglýst fljótlega og það mun ekki fara fram hjá mönnum hér á huganum. Einnig verður ferðin auglýst á www.flugmalafelag.is

Re: Ný AIP

í Flug fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég er sammála, bókin lítur út fyrir að vera nokkuð vegleg og mikið í hana lagt. En ég flýg mest í litlum 2ja eða 4ra sæta flugvélum, það er bara ekkert pláss ! Ég athugaði málin hjá FMS og það á að gefa út aðra bók í stærð A5, hún verður með öllum kortum ásamt einhverjum fleiri upplýsingum. Það er verið að hefja vinnslu á þessari bók, en það ætti ekki að taka mjög langan tíma þar sem að búið er að vinna allar upplýsingarnar fyrir “stóru bókina”. Einnig fer nýja sjónflugskortið í prentun í...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok