Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Serendip
Serendip Notandi frá fornöld 638 stig

Hækustund (0 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Svona bros sáldrar hamingjufræjum undir hjartarótum. Svona orð vekur gleðidagana af blundi sínum. Svona stund skýtur djúpum rótum í snjáðar minningar.

Bið (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 9 mánuðum
er hentug til margra hluta. Til dæmis að rekja upp vandlega ofna fléttu fyrra skipulags, raða stundaskrá ofan í kassa sem geymist til betri tíma og rifja upp hvað helst er til angurs í þínu fari, kæri vinur.

Síður dagblaðs (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
síður dagblaðs sem reynt er að lesa á borði út’undir berum himni flögra í vindinum til og frá langar að fljúga burt með blænum enda steindautt á þessu borði og blaðið í svart hvítu mestmegnis dauflegt allsendis á meðan þytur vindsins syngur í greinum trjánna, fuglar leika sér á húsaþökum og skáldlega fagrar konur ganga götuna þangað góna allir ærlegir menn og þangað fljúga síður dagblaðs með alvöru hugsjón

Forðum keik (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
orð mín leita enn sem fyrr að skoðun sem keik stóð hér forðum finnst nú hvergi

Orð mín (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
orð mín leita enn sem fyrr að skoðun sem keik stóð hér áður finnst nú hvergi

Regndroparnir (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
regndroparnir kyssa mig á kinnina mjúkum hlýjum kossi einsog í útlöndum á blágrárri götunni glitra dropar dálítið eldri hugsa um þig og sólina í sömu andrá

Sólskinsdagur (2 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 10 mánuðum
í dag gengum við saman götu blágráa sólblikandi verslunargötu litum við í búð, konan þekkir okkur orðið, sagði hæ, hvað það er gaman að sjá ykkur aftur seldi þér sæta blússu í leiðinni þér fannst það gaman fengum okkur freiðandi öl úr krús á krá niðrá torgi létum freistast af fleskesteg hálfdanskri, lítinn snafs með trítluðum aftur heim heilsuðum ókunnugum og hlógum heilmikið þetta var góður dagu

Í vindinum sofa .... (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
í vindunum sofa sálir liðinna daga hvísla í draumi köldum orðum um framliðin haust, um vor og sumur andvana fædd

Loforð (1 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Loforð eru fleyi þínu landfestar sem af djörfung þú heggur léttum höndum, skipi þínu stýrir út á hið bláfagra haf

Sólarlag (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
sól sem í dag lýsti upp heiminn nú horfin til nátthimna fjarskans handan mána aðeins lítil dauf stjarna - nafnlaus

Hverfur (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
léttum fótum víkur vilji þinn eins og hind renni undan fráum orðum mínum hverfi inní mistur haustsins

Ljóðarýni og gullhamrar (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Get ekki orða bundist yfir síðustu umræðu! Að rýna og gagnrýna ljóð er ekki auðvelt verk, og vandaðar umsagnir um ljóð eru ekki gripnar upp af götunni. Þeir sem nenna og geta komið með slíkt framlag hér inn á síðunni eiga miklar þakkir skilið, og mér finnst að við sem sendum hingað inn afskaplega misgóð ljóð verðum að hafa umburðalyndi til þess að þola mönnum að koma með álit sem er þvert á eigin skoðanir um ágæti ljóða, ekkert frekar en hægt er að gera þær kröfur til skálda að þau birti...

Ótti - þýðing ljóðsins "Fear" eftir Charles Simic (10 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Óttinn berst mann frá manni ómeðvitað eins og skjálfti laufsins berst til þess næsta Á augabragði allt tréð titrar og engin merki um vind að sjá. - - - - - - - - - - - - - - - - Fear passes from man to man unknowing like a leaf passes it's shudder to another All of a sudden the whole tree is trembling and there is no sign of the wind

Ótti - þýðing ljóðsins "Fear" eftir Charles Simic (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Óttinn berst mann frá manni ómeðvitað eins og skjálfti laufsins berst til þess næsta Á augabragði allt tréð titrar og engin merki um vind að sjá.

Sálarrannsókn (8 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
frostbitnir fingur grafa í moldinni í eilífri leit að löngu fölnuðum og rotnuðum rótum afraksturinn liggur í haug, lúsugir njólar, harðir kögglar, fúnir stilkar og rótarangar inn á milli rifin rósablöð, morgunfrúr og bláfjólur sem flæktust með, alveg óvart - djásnin tættur er tilfinningagarðu

Óður til moldarinnar (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
moldin er dökk, næstum svört, ormétin, rotnandi leifar fallins lífs en nærir rætur dafna best í moldinni

Skrýtið (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Út um eldhúsgluggann horfi ég á bílana á miklubrautinni, um daginn sá ég bíl með tvo gula bónuspoka á þakinu, gott að ekki rigndi þann daginn. Sat í gær á kaffibarnum yfir bolla af kaffi latti, bragðbættu með heslihnetum, finnst það gott, sólin skein á grasið á austurvelli, þar reikaði kófdrukkin gæs völt í spori, datt á stélið af og til, hvíldi sig, reyndi svo aftur. Hlýtur að hafa fengið dísu hjá rónunum, hugsaði ég, en túristarnir eltu hana í halarófu með myndavél á lofti þegar hún gekk...

Kvíðboginn (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 1 mánuði
Kvíðboginn þinn er þaninn til hins ítrasta. Fatist tak þitt flýgur beitt ör í fang mitt.

Eftirsjá (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
I. tindrandi skína á þræði tilverunnar steinrunnin augnablik einsog perlur úr plasti II. tækifæri sem hjóðlaust rann milli fingra hvarf í svartan sandinn syndir nú í bláum sjónum skima eftir öðrum fiskum í þessum sjó sem alltaf er talað um að syndi í stórum torfum bíði þess bjartir að verða veiddir í net mitt

Í leit að horfnum ljóðaheimi ... (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Nú vil ég bara lýsa söknuði mínum eftir frábærri framtakssemi stjórnenda ljóðasíðunnar - sem áður var - get svo sem skilið að þeir hafi ekki lengur tíma eða orku til þess að sinna síðunni af sama krafti og áður. En nú er lífið sem áður var á þessari síðu líka nánast fjarað út og skáld nenna varla lengur að senda inn ljóð - og það finnst mér dapurlegt ……… er von til þess að hún rísi upp eins og Lasarus forðum ?

Orð (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
orð eru ekki einsog eðalvín sem geymd í eikartunnu göfgast með aldrinum grafin í hjarta verða orð beisk og fúlna við geymslu

Vetrarmorgunn (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
bleikir og bláir eru borðar himins hrímsvalan vetrarmorgunn tær og blár gnæfir hjálmur yfir settur hvítum slæðum vitin fyllast ferskum anda ferskari en nokkur hugsun sem slegist hefur í för með mé

Klakamorgunn (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
í gær bjartur morgunroðinn hlær í fölbláum klakaglugga og þú birtir mynd af sjö ára stúlku - með fléttur og forvitin augu - fingrum smáum teiknar hún mynstur úr frostrósum á kjallaraglugga

Gráa húsið (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 2 mánuðum
á hvejum degi mæti ég gráum mönnum með gráslegin hár á höfði í gráum fötum, guggnir í framan beygðir og bognir bera þeir margra ára vonbrigði á bakinu ganga hægt upp og niður gráa stiga í gráa húsinu þar sem ég vinn sitja við skrifborð hinu megin við ganginn markaðir andvana vonum langa daga strita við að segja nei stórir draumar búa í næsta húsi bara smáir hé

Kvikmynd á rúðu - endurunnið (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 3 mánuðum
regnið bylur á rúðunni með stanslausum err hljóðum droparnir leika við ljósið - úr fjarskanum fanga það hugfanginn horfi ég á rákótt doppótt útsýnið renna letilega niður glerið
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok