I.

tindrandi skína á þræði tilverunnar
steinrunnin augnablik
einsog perlur úr plasti

II.

tækifæri sem hjóðlaust rann milli fingra
hvarf í svartan sandinn
syndir nú í bláum sjónum

skima eftir öðrum fiskum í þessum sjó
sem alltaf er talað um
að syndi í stórum torfum

bíði þess bjartir
að verða veiddir í net mitt