Nú vil ég bara lýsa söknuði mínum eftir frábærri framtakssemi stjórnenda ljóðasíðunnar - sem áður var - get svo sem skilið að þeir hafi ekki lengur tíma eða orku til þess að sinna síðunni af sama krafti og áður.

En nú er lífið sem áður var á þessari síðu líka nánast fjarað út og skáld nenna varla lengur að senda inn ljóð - og það finnst mér dapurlegt ……… er von til þess að hún rísi upp eins og Lasarus forðum ?