síður dagblaðs
sem reynt er að lesa á borði
út’undir berum himni
flögra í vindinum
til og frá
langar að fljúga burt
með blænum
enda steindautt
á þessu borði
og blaðið í svart hvítu
mestmegnis
dauflegt allsendis

á meðan þytur vindsins
syngur í greinum trjánna, fuglar
leika sér á húsaþökum
og skáldlega fagrar konur
ganga götuna

þangað góna allir ærlegir menn
og þangað fljúga síður dagblaðs
með alvöru hugsjón