Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rx7
Rx7 Notandi frá fornöld 1.174 stig

Flash Drif á stærð við kveikjara (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 8 mánuðum
EasyDisk heitir græjan og er hún lítið flash module sem tengist við tölvuna þína í gegnum USB. Easydisk fæst nú þegar í stærðum frá 16MB uppí 128MB og í þessum mánuði kemur 256MB týpa og svo er ekki langt að bíða að 512MB útgáfa líti dagsins ljós. Tækið kemur meira að segja með sínu eigin hulstri og er hægt að smella því á beltið ásamt öllu hinu ruslinu (GSM, MP3 spilara osfrv…) þó að bara þeir allra sorglegustu gangi með eikkað sona drasl á beltinu sínu. Gagna hraðinn á þessu er að visu...

Single-Chip Breiðbands Modem (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fyrirtækið Broadcom hefur gefið út breiðbands modem sem fyrir utan að geta höndlað allt uppí 48Mbps og styðja alla nýjustu staðla kemst fyrir í einni flögu. Módemið styður einnig dual loftnet til að auka gagnaflæði. Þetta þýðir að bráðum fer maður að geta downloadað allskyns drasli í palmtoppinn sinn, talað yfir netið (VoIP) og horft á streaming video. Eina vandamálið er að stykkið kostar $60 í 10000 eininga sendingum. Verðið á þó vonandi eftir að lækka í framtíðinni. Fengið af <a...

20X CD-R frá Yamaha (13 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Yamaha var nýlega að setja á markað geislaskrifara sem getur skrifað á 20X hraða sem þýðir að hann er 3:50 að skrifa heilan geisladisk (theoretical hraði). Í raun var hann 4:59 að skrifa 79mín geisladisk í prófun sem Toms Hardware Guide gerði. Þrátt fyrir það er hann samt allra sneggsti skrifarinn á markaðnum. Þegar maður er farinn að tala um svona mikinn hraða þá koma alltaf upp vandamál með hið hataða Buffer Underrun. Yamaha hefur þó hugsað fyrir því með því að setja í drifið svokallaða...

Hljóðlaust Hart Drif (8 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það kannast allir við brakið í tölvunni þegar harði diskurinn er að seeka (finna stöff á disknum). Mér hefur reyndar alltaf fundist þetta hljóð hálf þægilegt því að þá veit maður hvenær eikkað er að gerast ossollis. Kallarnir hjá Seagate eru hinsvegar ekki sammála mér. Þeir hafa búið til harðan disk sem fyrir utan að snúast á 7200rpm, geta tekið 80GB, hafa 8,9msec meðal seek tíma og flytja 69,3MB á sekúndu (sem er nú bara nokkuð gott), er nærri alveg hljóðlaust. Drifið notar SoftSonic FDB...

Blár Laser - Fjórfalt meira á CD,DVD osfrv... (9 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Elantec Semiconductors kynnti nýlega nýjan Laser-díóðu driver (dæmið sem stýrir lasernum) fyrir bláa/fjólubláa laser geisla. Venjuleg geisladrif notast við rauða/innrauða geisla sem hafa sveifluvídd uppá 780-850nm (innrautt) og 635-670nm (rautt). Bláir geislar hafa sveifluvídd uppá aðeins uþb 400nm. Þetta hljómar kannski eins og óskiljanlegt bull en þetta þýðir að hægt er að einbeita geislanum á minna svæði og þar með gera pittina (það sem laserinn skrifar/les af diskum) miklu minni sem...

500 MB á Tíkalli (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Imation sem er fyrirtæki sem meðal annars framleiðir skrifanlega geisladiska og Dataplay hafa hafið samstarf um framleiðslu á pínulitlum geisladiskum sem eru 5mm stærri en tíkallar og geta geymt allt að 500MB. Þessum litlu diskum svipar til MiniDiska í útliti en í staðinn fyrir að vera á stærð við 2 eldspýtupakka verða diskarnir aðeins 32mm í þvermál. Þó að þessir diskar komi varla til með að komast í almenna notkun þá er alltaf gaman að sjá dót sem maður hefur séð í Sci-Fi myndum koma fram...

61" Plasma Risi frá NEC (11 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Meðan að flestir eru að bíða óþreyjufullir eftir því að nýju LCD framleiðslu aðferðirnar sem IBM og aðrir þróuðu geri LCD-ana soldið ódýrari svo við getum farið að hugsa um að fá okkur þá fer NEC beinustu leið yfir í overkill-ið. NEC var að tilkynna nýjustu viðbót þeirra við LCD skjámarkaðin: PlasmaSync 61MP1. Þessi risi hefur upplausn uppá 1365 x 768 XGA og meðal þess sem hann styður eru tvær skjámyndir á sama skjá (split screen), mynd-í-mynd, digital zoom og einnig er hægt að tengja...

Er Solid State framtíðin? (10 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Nú virðast flestöll tæknifyrirtæki sem vilja láta taka sig alvarlega vera komin með stór flash drif sem flest eru tengd við SCSI eða RAID eða fiber sem ég kann ekki alveg skil á en er víst það nýjasta og besta (dýrasta líka). Þessi hafa enga hreifanlega parta og því heyrist ekkert frá þeim, þau þola mikinn hristing og gífurlegar hitasveiflur (frá -25°c til 75°c) og síðast en ekki síst hafa þau sóknartíma sem innra minni gæti verið stolt af (ok meðan það er ekki DDR eða RDRAM). Ég veit að ég...

Nvidia gefur út nýtt Móbó Chipset (4 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nvidia afhjúpaði í gær Nforce sem er nýtt chipset fyrir móðurborð. Þetta chipset er mjög tilkomumikið og þegar maður les yfir listann um hvað þetta chipset á að gera; eins og til dæmis að auka vinnsluhraða Athlon örgjörva um heil 20% með tækni sem heitir DASP (Dynamic Adaptive Speculative Pre-Processor) sem spáir fyrir um hvaða gögn örgjörvann kemur til með að vanta og forsækir þau gögn. Síðan má nefna að inni í þessu chipsetti er innbyggt 3D chipsett en ekki eitthvað rusl eins og í i810 og...

32MB á 1.44" Floppy (13 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrirtækið Addonics kynnti nýlega nýtt disklingadrif sem fyrir utan að vera utanályggjandi, tengjast við USB, geta komið fyrir 240MB á sérstökum Superdisk240 disklingum, 120MB á gömlum Superdisk120 disklingum getur einnig komið fyrir heilum 32MB á venjulega 1.44" diskettu. Drifið heitir Pocket Superdisk 240 og kostar í útlandinu $199 Ekki nóg með að þetta geti komið 32MB á venjulegan floppy (þó maður þurfi væntanlega að lesa með samskonar drifi) þá getur maður flutt fleiri hundruð MB á milli...

64-bita örri frá AMD og Transmeta (6 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrirtækin Advanced Micro Devices (AMD) og Transmeta (þeir sem gerðu Crusoe laptop örrann) hafa hafið samstarf um hönnun á nýjum 64-bita örra sem mun vera í beinni samkeppni við Itanium frá Intel. Hinn nýji 64-bita örri mun nota nýtt instruction set sem heitir x86-64. Þetta sett er byggt á gamla góða x86 og mun því ekki þurfa að reyða sig á að heimurinn taki sig til og hendi öllum gömlu góðu 32-bit forritunum í ruslið á einu fati. Það er farið að dimma allmikið hjá Intel því að amk eins og...

400GB 2003 (19 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
IBM hefur tilkynnt að þeir séu komnir með tækni sem muni árið 2003 hafa allt uppí fjórfaldað geymslugetu harðra diska. IBM segir að árið 2003 búist þeir við að geta komið fyrir 100GB á einni fertommu á hörðum drifum. Nýja tæknin felst í því að setja þriggja atóma þykkt lag af Rothium sem er sjaldgæfur málmur sem hefur svipaða eiginleika og platína milli tveggja segullaga. Vísindamenn hjá IBM kalla rothium lagið “pixie dust” (álfaryk) en tæknin heitir á vísindamáli...

3D LCD Skjár (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það kannast flestir við gömlu 3D “kíkjana” sem maður setti pappadisk með fullt af litlum slides-um inní og kíkti svo í gegn og sá myndirnar í þrívídd. Næsta skref þar á eftir voru headsett með tveimur litlum skjáum sem maður -átti- að geta séð hluti í þrívídd í. Svo koma gleraugun sem maður tengdi við TNT2 kortið sitt og gat þá ótrúlegt en satt séð hluti í þrívídd á skjánum sínum. Vinur minn á sollis og ég held að hann hafi náð að láta það virka svona einusinni. Nú er hinsvegar komin ný...

Svona kemurðu í veg fyrir að 7110 frjósi. (11 álit)

í Farsímar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þar sem alveg ótrúlega margir 7110 notendur virðast eiga í vandræðum með að símarnir þeirra séu að frjósa þá bara varð ég að skrifa þetta. 7110 er ekki að frjósa út af gölluðum vélbúnaði eða lélegum örgjörva. Ástæðan er einfaldlega sú að firmware-ið er gallað og óklárað. Ég á 7110 og í fyrstu var hann stöðugt að frjósa (reyndar líka 5110-inn sem ég átti þar á undan) en núna er hann steinhættur að frjósa vegna þess að ég fór uppí hátækni (umboðsaðila NOKIA á íslandi) og lét uppfæra...

Örgjörvar 500 sinnum minni? (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
IBM hefur með nýrri tækni sem þeir hafa einkaleyfi á tekist að búa til nanótúbur úr kolefni sem hægt væri að nota til að búa til örgjörva sem eru 500 sinnum minni en núverandi kísil örgjörvar. Meðan minnstu kísil smárar eru 130 nanómetrar (0.13 míkron) í þvermál eru þessir nýju nanótúbu smárar aðeins 1.2 nanómetrar í þvermál. Kísil örgjörvar eru komnir að mörkum þess sem hægt er að minnka þá og það er alveg öruggt að þessir nýju nanótúbu smárar munu koma til með að gera mönnum kleyft að...

AMD gefur út fyrsta Athlon4 örrann (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fyrsti Athlon4 örrinn frá AMD er kominn út og er hann ætlaður fyrir laptop tölvur. Þessi Athlon4 á að vera svar við Mobile PIII frá intel og er ætlað að hjálpa AMD við að ná fótfestu á kjölturakkamarkaðnum. Innan fárra vikna munu svo koma Athlon4 fyrir borðtölvur og dual CPU workstation líka. Athlon4 mun nota minna rafmagn og því framleiða minni hita, smárunum fjölgar um hálfa milljón eða úr 37 milljónum í 37,5 milljónir (duuuh), die-ið sjálft kemur líka til með að vera 8 fermillimetrum...

Double Density -> 1.3GIG á geisladisk. (4 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sony er núna búið að búa til geislaskrifara sem kemur fyrir 1.3GIG á -næstum- venjulegum geisladisk. Diskarnir eru kallaðir DD-R/DD-RW sem stendur fyrir Double Density. Sony tókst þetta með því að þjappa saman tröckunum á disknum og stytta grófirnar sem geislinn brennir í diskinn. Svo skrifar drifið náttla líka venjulega CD-R/RW diska og fyrir $250 í útlandinu er þetta ekki svo rosalegur peningur. Bara spurning hvort það væri ekki erfitt að fá DD-R/RW diska hérna… Rx7

Tómir geisladiskar líklegir til að hækka (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Verð á skrifanlegum geisladiskum hafa verið lág hingað til vegna þess að yrirtæki hafa átt til birgðir af þeim vegna offramleiðslu en undanfarið hefur sala á skrifanlegum geisladiskum verið svo mikil að nú eru birgðirnar á þrotum og koma verðin til með að hækka töluvert þegar skortur verður á diskunum. Líklegt þykir að verðin komi til með að hækka um allt að hátt í 40%. Er kannski kominn tími til að byrja að hamstra? Meira <a HREF=http://www.pcworld.com/news/article/0,aid,49504,00.asp>Hér</a> Rx7

AMD Lækkar Verð á Athlon (16 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
AMD virðist ætla að jarða Intel endanlega því að þeir tilkynntu nýlega að þeir ætli sér að lækka verð á Athlon örgjörvum sínum töluvert. Búist er við að 1.3GHz Athlon lækki um 45% úr $318 í $175 og 1GHz Athloninn um 31% úr $204 í $140. Meira <a HREF=http://news.cnet.com/news/0-1006-200-5797957.html>Hér</a> Rx7

Sjálflagandi vefþjónar? (3 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
IBM hefur ákveðið að leggja 25% af rannsóknarfé sínu í áætlun sem heitir eLiza. IBM ætlar sér að hanna vefþjóna sem halda sér við sjálfir, sjá sjálfir um að ná í nýjustu hugbúnaðaruppfærslur og sjá um sitt eigið öryggi. Það sem meira er að þessi vefþjónar eiga að vera svo einfaldir í notkun að þeir eiga að vera álíka flóknir og eldhústæki í meðförum sem á að minnka þörf fyrir IT sérfræðinga. Skemmtileg framtíðarsýn en ætli þetta komi nokkurntíman með að takast? Ford til dæmis ætlar að búa...

DSL ennþá hraðvirkara með SHDSL (10 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
SHDSL eða Symmetrical High-Density Digital Subscriber Line er nýjasta breiðbandstæknin og með henni á að vera hægt að fara allt uppí 4,6MB/sek hvora leið. Framleiðandinn Efficient Networks segir að tæknin nái allt að 20.000 fet eða uþb 6,6Km frá stöðinni og allt upp í 19 mílur með mögnurum. Tæknin mun koma fyrst til Evrópu í stað þess að koma -eins og venjulega- fyrst til Ameríku. Því miður eru þó litlar líkur á því að Land$íminn komi til með að taka upp þessa tækni að mínu mati vegna...

Nvidia Lækkar Verð (11 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Vegna samkeppni frá ATI Technologies hefur Nvidia neyðst til að lækka verð á kortunum sínum. Ódýrasta kortið frá þeim 32MB GeForce2 200 MX mun kosta skitna $99 og flaggskipið 64MB DDR GeForce3 mun kosta $399 en það átti upprunalega að kosta $499. Með þessari verðlækkun mun GeForce3 kortið kosta 20% minna en GeForce2 Ultra kortið. $100 lækkun er ekkert smá og þetta kemur til með að auka líkurnar á að maður fái sér þetta kort sem hefur verið að fá rosalega dóma td á tomshardware.com. Meira um...

Gegnsæir Hátalarar. (8 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Vísindamönnum í Kóreu hefur tekist að búa til hátalara sem eru álíka þunnir og plastpoki, gegnsæir og hægt er að rúlla saman. Þessar filmur eru piezoelektrískar filmur sem breyta rafmagni í hljóð. Svipaðar filmur eru í hringjurum og hátölurum í GSM símum, í bílflautum og löggusírenum. Það sem er nýtt við þetta er að þessar filmur þarf ekki að festa við neitt og það er hægt að rúlla þeim upp og stinga í vasann. PS: Þessi grein lenti fyrst inná Linux af óskiljanlegum ástæðum þó ég hafi skrifað...

Gegnsæir hátalarar (6 álit)

í Linux fyrir 23 árum
Vísindamönnum í Kóreu hefur tekist að búa til hátalara sem eru álíka þunnir og plastpoki, gegnsæir og hægt er að rúlla saman. Þessar filmur eru piezoelektrískar filmur sem breyta rafmagni í hljóð. Svipaðar filmur eru í hringjurum og hátölurum í GSM símum, í bílflautum og löggusírenum. Það sem er nýtt við þetta er að þessar filmur þarf ekki að festa við neitt og það er hægt að rúlla þeim upp og stinga í vasann.

IBM krotar Linux auglýsingar (2 álit)

í Linux fyrir 23 árum
Í San Francisco hefur fyrir tækið IBM krotað auglýsingar sem sýna Tux, hjarta og friðar merki á götur borgarinnar. Borgarstarfsmenn eru ekki sáttir og segja að þó að liturinn sem notaður sé eigi að eyðast upp í rigningu hafi Tux haldið áfram að brosa sínu breiðasta á götunni jafnvel eftir talsverða rigningu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok