Imation sem er fyrirtæki sem meðal annars framleiðir skrifanlega geisladiska og Dataplay hafa hafið samstarf um framleiðslu á pínulitlum geisladiskum sem eru 5mm stærri en tíkallar og geta geymt allt að 500MB.

Þessum litlu diskum svipar til MiniDiska í útliti en í staðinn fyrir að vera á stærð við 2 eldspýtupakka verða diskarnir aðeins 32mm í þvermál.

Þó að þessir diskar komi varla til með að komast í almenna notkun þá er alltaf gaman að sjá dót sem maður hefur séð í Sci-Fi myndum koma fram á markaðinn.


Rx7