Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Protester
Protester Notandi frá fornöld Karlmaður
736 stig
In such a world as this does one dare to think for himself?

Nýtt lag með Lamb of God (7 álit)

í Metall fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Lamb of god voru að gefa út eitt af nýju lögunum af plötunni þeirra Wrath sem heitir Contractor. Platan sjálf kemur síðan út í febrúar á næsta ári. Þetta kallar maður góða jólagjöf! Hægt er að hlusta á það á myspeisinu þeirra, myspace.com/lambofgod Persónulega finnst mér þetta lag alveg frábært, mun hraðara og þyngra en ég bjóst við, ég viðurkenni það að mér þótti Sacrament slappasta platan þeirra (hún var Góð, bara ekki up to par eins og sagt er) en þetta lag sýnir að þeir eru ekki búnir að...

Hvað kostar gat á Akureyri (7 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Já, hvað kostar það hérna á Akureyri að fá gat í augabrúnina? og hvar get ég fengið það? Tattoo stofan sem var alltaf í sunnuhlíð er lokuð held ég þannig að ég veit ekkert hvar ég get fengið þetta…. Öll hjálp er vel þegin.

The Ocean - Frábær hljómsveit (1 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 1 mánuði
Mig langaði til að nefna þessa hljómsveit, The Ocean, sem ég var að kynnast. Ég veit ekki til þess að minnst hafi verið á þessa hljómsveit hér á /metall, en það er líka svoldið síðan ég kom hingað síðast. Ég mæli með því að allir kynni sér nýju plötuna þeirra, Precambrian, sem kom út seint á síðasta ári. Ég kynntist henni sjálfur í gegnum MetalSucks.net (snilldarsíða) þar sem þeir sögðu að hún væri vanmetnasta plata 2007. Þar komu þeir einnig með þessa tilvitnun sem mér þótti mjög góð. It...

Er þetta hægt? (9 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Er nokkuð mikið mál að að fá twister/spiral pinna eins og þennan: http://www.painfulpleasures.com/xcart/customer/product.php?productid=163&cat=15&page=3 eða þennan: http://www.painfulpleasures.com/xcart/customer/product.php?productid=2649&cat=15&page=1 í augabrúnina? Ég er alveg handviss um að ég hafi séð þetta á mynd einhversstaðar en þegar ég leita að þessu þá finn ég enga mynd af neinum með svona, en mér finnst samt ótrúlegt ef að það er ekki hægt að fá svona. HVað segið þið?

Breyta Triple Stereo kapli yfir í USB? (8 álit)

í Græjur fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Sælinú. Ég var að enda við að kaupa mér hátalarastæðu, þessa hér reyndar : http://www.att.is/product_info.php?cPath=45_38&products_id=3663&osCsid=8cad9a847586d0dc15bc6fbdbf6144ed Ég gekk hinsvegar aðeins of hratt um gleðinnar dyr, og gaf mér ekki tíma til að athuga hvort að tölvan mín væri með rétt tengi sem þyrfti fyrir þessa stæðu. Svo er ekki. Til að virkja alla hátalarana þarf þrefalt mini-jack input, eins og er líklegast að finna á öllum turntölvum, en lappinn minn er bara með eitt...

Uppáhalds non-metal tónlistarfólk? (206 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Jæja, nú spyr ég ykkur kæru Metal-unnendur. Hvað hlustið þið á annað en Metal (ef þið hlustið nú á eitthvað annað en metal þ.e.a.s). Hverjar eru t.d. uppáhalds hljómsveitir/tónlistarfólk ykkar utan metal-stefnunnar? Hljómsveitir sem ég get nefnt eru: Hjálmar - Alíslenskt Reggae Counting Crows Radiohead Og tónlistarfólk sem ég get nefnt eru t.d Norah Jones Bob Dylan K.T Tunstall Tiken Jah Fakoly Bob Marley Habib Koité En þetta er bara það sem ég hlusta hvað mest á fyrir utan metalinn, en...

I'm Ivan (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Hér sést hann Ivan, úr myndinni The Machinist, mynd sem hristi vel uppí mér. Sjálfur varð ég nokkuð hræddur við að horfa á hana, þótt hún sé ekki ætluð sem hryllingsmynd, því að það er mikið um geðsjúkdóma í minni ætt og myndin The Machinist fjallar einmitt um Derek Reznik, sem að hefur ekki sofið í heilt ár og er farinn að efast um geðheilsu sína. Mynd sem ég mæli hiklaust með fyrir alla hardcore kvikmyndaunnendur. Hún er gríðarlega vel skrifuð og unnin, og Christian Bale sýnir gífurlega...

Hvaða hljómsveit? (25 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Jæja, hérna er myndaþraut og nú er ykkar að leysa, hvaða hljómsveit er ég að hugsa um? Þið þurfið að hugsa út fyrir kassann, því þessi er nokkuð langsótt, en þeim mun meiri er heiðurinn ef ykkur tekst að leysa gátuna. P.S Nei, þessi kona tengist hljómsveitinni ekki neitt.

The Haunted (17 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
The Haunted er hljómsveit sem rekur ættir sínar til Gautaborgar í Svíþjóð, en þar var hún stofnuð árið 1996 af Patrik Jensen á gítar, Jonas Björler á bassa, Adrian Erlandsson á trommum, Anders Björler á gítar og Peter Dolving sem söngvara. Báðir Björler bræðurnir og Erlandsson voru áður í hljómsveitinni At the Gates, sem margir hér ættu að kannast við sem eina af frumkvöðlahljómsveitum Sænsku Melodic Death-Metal senunnar. The Haunted sameinar sándið í original Thrash Metal sem einkenndi...

Exodus - Tempo of the Damned (4 álit)

í Metall fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Alveg hreint brilliant diskur. Skylduhlustun fyrir alla sanna Thrash-aðdáendur. Mæli sérstaklega með lögunum Culling of the Herd og Shroud of Urine, en hið síðarnefnda er hægt að hlusta á á myspace-inu þeirra: www.myspace.com/exodus

Lamb of God - As The Palaces Burn (2002) (12 álit)

í Metall fyrir 17 árum
Að mínu mati besta platan með góðvinum mínum Agnus Dei. Samheldin, hröð, hörð og hrá. Auk þess er textasmíðin ekkert nema steittur hnefi gagnvart öllu spilltu yfirvaldi, sem er þema sem höfðar alltaf mikið til mín. Uppáhalds lög: Ruin, As the Palaces Burn, 11th Hour og Vigil.

Exodus - Bonded by Blood (17 álit)

í Metall fyrir 17 árum
Hérna sjáum við coverið á fyrstu plötu Thrash hljómsveitarinnar Exodus, en þótt þeir séu nokkuð óþekktir eru þeir taldir með upphafsmönnum Thrash stefnunnar í Ameríku. Vegna deilna við útgáfufyrirtækið, sem taldi plötuna ekki söluvæna, féll hún í skuggan af Kill'em All með Metallica, en ef svo hefði ekki verið telja margir að hún hefði fengið mun meiri athygli en hún fékk. Sveitin hefur gengið í gegnum mjög miklar breytingar um árin, og í dag er aðeins einn af upprunalegu meðlimunum í...

Soulfy - Primitive (15 álit)

í Metall fyrir 17 árum
Hérna sjáum við Coverið á Primitive með hljómsveitinni Soulfly, en hún var stofnuð af snillingnum Max Cavalera sem allir þekkja úr Sepultura, en auk þess hefur Roy Mayorga oft spilað á trommur með þeim Live. Þetta er reyndar eina platan með þeim sem ég hef hlustað almennilega á hingað til, en ég hef verið að vinna mig hægt í gegnum alla diskana þeirra. Þetta er alls ekki allra smekkur, aðallega vegna þess að þeir blanda stundum saman mjög ólíkum tónlistarstefnum í lögin sín, jafnvel Reegae...

Rusl-Rokk? (37 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 1 mánuði
Nú veit ég ekki hversu margir hafa séð eina grein í nýjasta tölublaði Verðandi, en þar er grein um Thrash metal, þá aðalllega Slayer, þar sem nafnið Thrash-Metal hefur verið þýtt sem Rusl-Rokk. Ekki nóg með þessa fáránlegu þýðingu heldur eru í þessari stuttu grein þónokkrar staðreyndavillur sem stinga í augun. Ég hafði hingað til verið nokkuð hlutlaus gagnvart þessu blaði, en ég get nú ekki sagt að maður geti tekið mikið mark á blaði þar sem svona villur eru settar í prent. Þetta blað er...

300 - Orrustan við Laugarskarð - Hvað gerðist í raun og veru? (127 álit)

í Sagnfræði fyrir 17 árum, 1 mánuði
Eins og allir hafa tekið eftir þá hefur myndin 300 verið að gera mjög góða hluti í bíóhúsum hérlendis jafnt og erlendis, en mér datt þessvegna í hug að senda hérna inn grein um það sem gerðist í raun og veru, og hversu mikið í myndinni er í raun byggt á raunveruleikanum. Ekki misskilja mig, mér þótti myndin þónokkuð góð, en enginn getur neitað því að hún er gríðarlega ýkt, en mér datt í hug að fólk hefði kannski áhuga á því að vita hvað gerðist í raun og veru. Þetta er texti sem ég samdi...

The Condemned. (24 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 1 mánuði
Vá hvað þessi mynd er ekkert að reyna að fela það að hún er rip-off af Battle Royale. Ég veit ekki með ykkur en ég er kominn með svo mikið ógeð á vestrænum endurgerðum af asískum myndum. Hollywood ætti bara að pillast til ða fá sínar eigin hugmyndir. En eins og við vitum öll þá er Hollywood fyrir fleiri áratugum orðin uppurin með hugmyndir, þannig að í raun ætti þetta ekkert að koma á óvart. Sem betur fer virðist loksins vera komin nógu mikil gróska í íslenskt kvikmyndalíf þannig að áhuginn...

Metall/Ekki Metall (106 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Oki, núna er Lamb of God farin að verða mjög þekkt hljómsveit hérna á þessu áhugamáli, og þótt að flestir hérna virði og kunni að meta þessa hljómsveit, þá er ekki hægt að komast hjá því í hinum stóra heimi internetsins, að mjög margir á erlendum vettvangi eru mjög mikið á móti þessari hljómsveit og segja að hún spili ekki metal, heldur einhverja útþynnta útgáfu. Nú ætla ég ekki að reyna að segja að ég viti allt um Metal, en ég get bara ekki skilið þessa skoðun. Þegar fólk segir að þetta sé...

Hvaða Mynd? (16 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég verð alveg himinlifandi ef einhver hérna veit hvaða mynd þetta er. Þessi mynd er algjör gimsteinn sem allt of fáir sjá.

Stanley's Cup... Aftur (pínu spoiler) (42 álit)

í Teiknimyndir fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Það var gerður korkur hérna fyrir neðan þar sem var verið að væla um það að þetta væri sikk þáttur og ömurlegur og of mikil sápuópera og bla bla bla…. Hættið þessu væli! Þetta er einn besti SP þáttur sem gerður hefur verið að mínu mati! Einu skiptin sem ég man eftir að hafa hlegið svona mikið er í Scott Tenorman must Die og Child Abduction is not Funny þáttunum. Þarna sýna Matt og Trey sínar bestu hliðar, sem liggja einmitt í algjörlega kolsvörtum húmor, sem svoleiðis lekur af þessum þætti....

Hvaða kvikmynd? (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég sá mynd fyrir nokkrum árum sem fjallaði um unga konu sem ákvað að fremja sjálfsmorð og hún byrjar svo að undirbúa sjálfsmorðið. Svo kemur mamma hennar ovænt í heimsókn kvöldið sem hún ætlar að drepa sig og dóttirinn segir henni að hún ætli að drepa sig, og svo fjallar myndin um kvöldið sem þær eyða saman á meðan dóttirinn er að undirbúa sig fyrir dauðann og mamman er að reyna að telja henni hughvarf. Veit einhver hvaða mynd þetta er?

Jack Daniels (9 álit)

í Djammið fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvernig er Jack? Er eitthvað varið í það? Annaðhvort heyri í fólk lofsama þetta eða úthúða þessu? Er þetta drullusterkt? HVernig bragð er af þessu? Og enn eitt, hvernig er gott að blanda þetta?

Smá getraun (4 álit)

í Teiknimyndir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvað heitir þessi maður og fyrir hvaða heimsfræga teiknimyndakarakter talar hann?

The Usual Suspects SPOILER (12 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
-=[SPOILER]=- Oki, er ég sá eini sem að þótti endirinn virkilega fyrirsjánlegur. Alltaf þegar ég nefni þessa mynd við fólk þá segir það alltaf “Já, fannst þér endirinn ekki alger snilld”. Nei. Alls ekki. Í raun fannst mér hann virkilega fyrirsjánlegur. Ekki misskilja mig, þetta er alveg gífurlega góð mynd, Kevin Spacey fer á kostum sem “krypplingurinn”. Hún var vel skrifuð, vel tekin og í raun var allt mjög gott við hana. Það eyðilagði samt rosalega mikið fyrir mér hvað mér þótti endirinn...

Diskabúð Valda (4 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég er nýfluttur suður og langaði bara að vita hvar geisladiskabúð valda er staðsett. Danke

Ábendingar (42 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Væruð þið til í að benda mér á einhver góð bönd til að kynna mér? Það sem ég er mest að fíla er Metallica (fyrstu 5 plötur) Sepultura Pantera Exodus Lamb of God Opeth In Flames Alice in Chains Black sabbath Childreon of Bodom Fear Factory Finntroll Iron Maiden MAchine Head Nevermore Nevolution Slayer Ef þið vitið um einhverjar lítt þekktar hljómsveitir í þessum stílum sem þið getið bent mér á þá væri það vel þegið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok