Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

blabla (0 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 3 mánuðum
blablablablablablablablabla

Half-Life (0 álit)

í Half-Life fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Vísindamaður virðir fyrir sér íslenskan samtíma. Unnið í photoshop 6.01. Screenskot úr cs_italy. Hallgrímskirkjumynd tekin af blindfullum dönskum ferðalangi.

Vefsíðugerð (0 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hafði ekkert betra við frítímann að gera.

Kvikmyndir - DVD (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Bókarkápan af sögu nýjustu myndar er David Fincher hyggst gera. Sagan segir af þjóni á veitingarhúsi NYC og hans lífi innan djöfullegs eldhúss þar sem margt annað er eldað en sæmir því fína fólkis sem að borðar hinn svokallaða mat.

Hvað er best til þess fallið? (1 álit)

í Danstónlist fyrir 21 árum, 1 mánuði
Karl faðir minn (á áttræðisaldri) keypti sér hljómborð sem að hann tengir við tölvuna sína í gegnum USB MIDI. Hann hefur notað til þessa Noteworthy Composer til að spila inn og fá upp nótur, hann er ánægður með þetta að öllu öðru leyti heldur en hugbúnaðurinn tekur ekki inn þagnir né lengd á nótum, ég var að velta því fyrir mér hvort þetta sé hugbúnaðartengt eða hvort þetta séu vankantar MIDI, - og hvað er til ráða?

Telja orð og slíta(php) (3 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ef ég er með textfield í mysql töflu og ég vill telja orðin og ákveða skilyrði við eitthvað hámark. T.d þegar skriftan mín hefur reiknað út að ein færsla er fleiri en 200 orð þá skiptir hún þessu niður og slítur án þess þó að slíta í sundur html tög. Hvernig er best að gera þetta? Vona að ég hafi gert sjálfan mig skiljanlegan! Kveðja Siggi

Vefpraktík (6 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Komið þið sælir vefarar. Ég hef verið undanfarið að velta því fyrir mér hvað það er sem að geri vefi eftirsóknarverða. Aðallega hef ég hugsað þetta út frá viðskiptalegu sjónarmiði. Segjum sem svo að ég hafi upp á vöru að bjóða sem að gæti hugsanlega náð einhverjum vinsældum, en er engan veginn presenteruð, hvað væri það fyrsta sem að ég gerði til að reyna að koma henni á framfæri, jú að skella upp heilum vef henni til hylli. Á vefnum yrði haldin tala um ágæti þessarar vöru og af henni væru...

dHTML AP Scrollable Area/IE5.1:mac vesen (4 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
<a href="http://www.z3roadster.net/dreamweaver/“ target=”blank">dHTML AP (Absolutely Positioned) Scrollable Area.</a> Ég á í vandræðum með þennan scroller að því leitinu til að hann virkar ekki í IE5.1:mac. Function-in virka ekki þó sjálfur glugginn birtist. Ég er ekki vel að mér í dhtml/java compatiblity en mér segir svo hugur að þessu geti verið bjargað með einhverju sniffer script-i. Hafið þið fengist við álíka vandræði og ef svo, hvað er til ráða? kveðja Siggi

Mysql, table join vesen (4 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er í bölvuðum vandræðum með það sem ég er að reyna að gera og leita þar af leiðandi á náðir ykkar snillingana. Ég hef verið að stúdera table join og er að reyna að koma ákveðnum hlutum úr tveimur og stundum þremur töflum í einni hendingu. Það sem ég er hinsvegar að reyna að áorka með þessu er að mysql spýti út einu row-i(id), einu sinni en sækji í sama veifinu úr annarri töflu 10 rows(id's). dæmi (1 table/1 id) Titill:Kartöflurekki Lýsing:Margir lenda í mikilli gremju í kringum kartöflur...

BLOB Field - Meta tags (2 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég er að reyna að kalla mynd fram úr BLOB field í mysql, en fæ hinsvegar binary kóða. Ég hef prufað að skilgreina myndina í gegnum html - meta: content sem image/jpeg, image/gif, án árangurs. Það er munur þarna á milli vafrara, þ.e. hvort þeir taki notice af meta-tags eður ei. Spurningin er hver öruggasta leiðin er til að spýta út myndum á þennan máta og hvað það er sem hefur reynst ykkur vel sem að notast við BLOB fields. Ef þetta er server tengt þá eru hér speccar. Apache 1.3.22 PHP 4.0.1...

brotnar myndir alls staðar, brotin loforð....... (6 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég vill í væntumþykju minni, kærleik og umburðarlyndi benda þeim sem að pósta með brotnum undirskriftarmyndum á skemmtilega og vel nýtanlega línu í html sem að kallast low source. Ég er nefnilega einn af þeim sem að hangi hér á hl korkunum í netfíkn minni og mér leiðist alveg ósegjanlega þessar brotnu myndir ykkar, og þar sem ég veit fyrir víst að þið eruð skemmtilegir og uppátækjasamir, þá myndi ég njóta þess 100% að sjá þessar litlu sætu myndir ykkar sem að þið hafið valið af svo mikilli...

wolfenstein SP/korkur (4 álit)

í Wolfenstein fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég mælist til þess að upp verði settur þartilgerður tips/hints/stuck korkur fyrir single-player útgáfu leiksins. Það ætti alveg að vera grundvöllur fyrir því að hafa þannig kork til staðar á vaxandi leikjaáhugamáli, allavegna svona meðan það er enginn kominn með official walkthru út í hinum stóra heima og með tilliti til þess að fleiri eigi þennan leik eftir að hann var gefinn út á mánudaginn. Hinsvegar ef ég er að missa af einhverju á sviði upplýsinga varðandi þetta málefni eða að...

Afmælisdagur dóttur minnar. (3 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Dóttir mín á afmæli í dag og ég veit ekki og hef svo til enga hugmynd um það hvað gæti glatt fjögurra ára stúlku. Alltaf fyrir afmæli hennar og jól geng ég inn í þartilgerðar búðir eins og apaköttur og veit ekkert í minn haus. Þar af leiðandi þætti mér gaman af því ef að einhver gæti upplýst mig um það hvað í ósköpunum ég gæti pakkað inn í pappír handa henni. Ég á von á því að það skipti hana talsverðu máli hvað ég færi henni, þess vegna legg ég þessa spurningu í kjöltu mér æðri...

Tweak XP and loose your mind and data (0 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég er einn af þeim sem að settu upp windows XP á sínum tíma með þokkalegum árangri. Ég er einnig einn af þeim sem að náði mér í tweaking utilites og hefði ég betur látið það ógert. Ég er enginn tweak kunnáttumaður, en ég er nýjungagjarn og sífellt á höttunum eftir nýjum ævintýrum. Það var ekki til sá hlutur í tölvunni minni sem að ég tweak-aði ekki. Það fyrsta sem gaf sig var 17“ monitor, hann höndlaði ekki álagið. Það næsta sem að fór úrskeiðis var Geforce 2 kortið sem að ég keypti í...

Raunstærð í win2k, error + gremja (1 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég setti upp win2k fyrir ástkæru systur mína og ég er að lenda í vandamáli sem ég hef ekki séð áður. Þannig er mál með vexti að windows les ekki diskinn eftir raunstærð heldur sem 2 GB (hann er 13 GB og speglar þá stærð í bios-num.) Er hér einhver sem að hefur lent í svipuðu og fundið lausn á þessu, eða er mér uppálagt að setja upp stýrikerfið aftur (sem ég nenni ómögulega, preparing to run windows for the first time eru skilaboð sem að ég hef séð of oft á minni tölvuævi.) Með fyrirfram þökk Promazin

Uppáferðir í sjónvarpi (3 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er alveg búinn að fá nóg af öllum þessum uppáferðum í dagskrá íslenskra sjónvarpsstöðva. Afhverju er verið að bjóða okkur sem að lifum engu rassgats kynlífi upp á það að hafa þetta fyrir augunum á hverju kvöldi, rétt svo til þess eins að vekja upp hjá manni dauðans gremju sem að bitnar á vinum og vandamönnum hérlendis sem erlendis. Ég segi nú er nóg komið, stoppum þætti og kvikmyndir sem að innihalda uppáferðir af einhverjum toga og einnig fréttaflutning af kynferðismálum, því það er...

Tölvu og verfræðiþjónustan (1 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég veit ekki nákvæmlega hvar ég á að pósta þessu, en þessi korkur virðist yfir höfuð hafa nokkuð breytt úrval þeirra er starfa eða eru að læra eitthvað viðkomandi tölvum, svo ég skýt spurningu minni hingað. Hefur einhver, einhverja reynslu af tölvu og viðskiptaþjónustunni <a href="http://www.tv.is“> www.tv.is</a>, það nám sem að ég hef verið að skoða hjá þeim er kerfisfræði upp á 379.000 kr. Gaman væri að vita hvað væri ”the word of mouth" hvað þessum skóla viðkemur. Ég veit hvað mér finnst...

Vantar tölvutuðru! (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Mig bráðvantar tölvutuðru fyrir c.a 5000. kr, hún þarf ekki að vera merkileg, en eitthvað þó yfir 100mhz. shalom@isholf.is Kveðja Promazin

Gagnvirkur advanced fréttavefur (6 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég er nýlega byrjaður að fikta og smíða gagnvirkar síður en kann samt ekki mikið. Mest læri ég á því að modifæa script sem að ég næ mér í á þartilgerðum vefsíðum. Ég hef sett upp svona upp fréttakerfi sem er í sjálfu sér góðra gjalda vert nema að ég hefði viljað hafa það aðeins meira advanced og þá í líkingu við það sem að er notað á strikinu og fleiri fréttavefum, þar sem að lesendum er gefinn kostur á því að smella og lesa alla fréttina eða greinina, hvort sem er. Ég veit ekki nákvæmlega...

Opinber fyrirspurn til zlave og Amything (4 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mér leikur hugur á því að vita hvort að það séu ekki sterkar líkur á því að þið hendið inn þeim borðum sem að verða spiluð á icsn/skjálfta(allavegna icsn, ef ég fer rétt með?) þ.e. de_clan1_mill de_clan2_fire_build11 de_inferno_build22 Ég tel mjög nauðsynlegt fyrir CS samfélagið sem að meira og minna tekur þátt í þessum mótum að fá þessi borð inn, þrátt fyrir tilheyrandi nöldur um ‘votemap’ á public. Kær kveðja [Cadia]Promazin - who gives a fuck what you think(Nigthmare on Elmstreet 3 -...

Adam - SP mission (2 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fyrir ykkur sem að vilja bregða ykkur á SP mission fyrir 1/2 life, þá mæli ég með Adam. Ég tók mig til á einhverjum tímapunkti í mínu lífi og spilaði öll þau borð sem að gefin voru út af no-name möppurum og stóð Adam þar upp úr í húmor og almennu skemmtanagildi. Ég vill samt vara sannkristna og unga spilara við, þar sem að mission-ið inniheldur soft-porn og er þar af leiðandi Rated-R vestanhafs (I wonder why, miðað við subbuskapinn sem að þar þrífst.) Adam.zip - samanstendur af 18 litlum...

Router og þjónar (6 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég er nýkominn bak við router og er það í sjálfu sér góðra gjalda vert, en mér gengur ekki nokkurn veginn að reka hverskyns server með þetta fyrirkomulag. Ég er með þokkalega tengingu og er þess vegna fullfær um að reka server upp á flutningsgetu að gera. Ég hef prufað að búa til port og þannig er remote tölvu mögulegt að tengja sig við mig, en þegar að athöfnum kemur(upl/dl) gengur hvorki né rekur. Vitið þið hvað er að. Kveðja Promazin

CS-svindlarar (9 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Stundum þegar ég spila á opinberum íslenskum leikþjónum, hugleiði ég með sjálfum mér þegar einstaka spilari er alveg yfirnátturulega góður, hvort viðkomandi sé að nota svindl. Ég er ekki að tala um þekkta spilara sem að eru einfaldlega bara góðir, þó að stundum hafi ég velt fyrir mér hvernig í rassgatinu þeir fara að þessu, heldur þá frekar þessi dæmigerði Dumbo sem ég kann ekki nokkur deili á mætir á svæðið og skýtur jafnvel undantekningalaust í hausinn á mótspilurum sínum og er svo til...

Eldhús Sannleikans - CS samfélagið (3 álit)

í Half-Life fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég var reyndar búinn að setja þetta á eldra viðfangsefni en þar sem að ég er flautaþyrill , þá skelli ég þessu einnig inn sem nýjum pósti. Ég er enginn afburða spilamaður! Ég hef fyrst og fremst gaman af leiknum ef hann er spilaður án tiltekinna leiðinda. Ég hef ekki spilað lengi, en á þessum tíma hef ég lent í allskonar uppákomum, sumum því miður þannig úr garði gjörðar að ég hef íhugað með sjálfum mér að snúa mér að SP leikjum eða þá bara saumaskap mér til dægrastyttinga. Hinsvegar er...

Á að hafa fleiri skoðanakannanir um phpin.com (0 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok