Dóttir mín á afmæli í dag og ég veit ekki og hef svo til enga hugmynd um það hvað gæti glatt fjögurra ára stúlku. Alltaf fyrir afmæli hennar og jól geng ég inn í þartilgerðar búðir eins og apaköttur og veit ekkert í minn haus. Þar af leiðandi þætti mér gaman af því ef að einhver gæti upplýst mig um það hvað í ósköpunum ég gæti pakkað inn í pappír handa henni. Ég á von á því að það skipti hana talsverðu máli hvað ég færi henni, þess vegna legg ég þessa spurningu í kjöltu mér æðri kynstofns(mér sýnist vera nær eingöngu kvenfólk hér.)

Með kærri kveðju
Promazin