Ég er alveg búinn að fá nóg af öllum þessum uppáferðum í dagskrá íslenskra sjónvarpsstöðva. Afhverju er verið að bjóða okkur sem að lifum engu rassgats kynlífi upp á það að hafa þetta fyrir augunum á hverju kvöldi, rétt svo til þess eins að vekja upp hjá manni dauðans gremju sem að bitnar á vinum og vandamönnum hérlendis sem erlendis. Ég segi nú er nóg komið, stoppum þætti og kvikmyndir sem að innihalda uppáferðir af einhverjum toga og einnig fréttaflutning af kynferðismálum, því það er helber óþarfi fyrir okkur að vera minntir á það hvernig stunur hljóma og hvernig kvenmannsrass lítur út.

Promazin - hefur tekið þátt í nöldrinu