Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kynfæra-piercings (8 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Er það satt sem ég hef heyrt einhverstaðar að göt til dæmis nálægt snípnum draga úr næmninni með tímanum? Ég hef sko heyrt að fyrst sé þetta geðveikt gott, að maður fái jafnvel fullnægingu við að krossleggja fæturnar, en svo dofni allt… Mér finnst þetta geta verið ógeðslega flott, en ég vil ekki fórna neinu mikilvægu fyrir það ;)

Hugleiðingar varðandi könnun (1 álit)

í Hátíðir fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég sá könnunina “Er trúin partur af jólahaldi hjá þér”. Ég er trúleysingi en held upp á jól, það er breyting og skemmtilegt að lýsa upp myrkrið o.s.frv. Foreldrar mínir eru trúaðir um jólin, en utan þess sýna þau engin merki um trú. Ég hef semsagt haldið jól með þeim, en þá reyni ég bara að leiða hjá mér þetta trúardót. Mamma fer stundum í fýlu þegar hún man eftir því að ég trúi ekki, en það gerist bara á jólunum. Oftast er henni sama. Þau hlusta á messu í útvarpinu, oftast á meðan við...

Opnunartímar (5 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Nei, ég er ekki að spurja að opnunartímum :p Mér datt bara í hug hvort það væri ekki sniðugt að einhver myndi safna saman opnunartímum hjá tattoostofum á landinu, og setja í einn kork einhverstaðar. Jújú, fólk getur leitað og hringt sjálft, en það er ekki alltaf auðvelt o_O

Úff... (25 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Kannski ekkert besta og mest djúsí nöldur allra tíma, en… Það er einhver hátíð í dag í vinnunni, afmælishátíð, og við eigum að vera ógeðslega hress og sæt og eitthvað, en ég get það ómögulega. Ég er að fara í endajaxltöku klukkan 3 :S Síðast þegar ég fór í þannig þá komst ég að því að ég er með feitt ofnæmi fyrir codeini, sem er víst í sumum tegundum verkjalyfja.. og íbúfen og panodil virka ekki sjitt. Þannig að ég vona að læknirinn viti um eitthvað gott sem er ekki of veikt, ekki of sterkt,...

Áskorun! (15 álit)

í Heimilið fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Ég skora á AgnarA AllaWhite AronBack axuz Bjornh Blublu butterfly5 Caitlin Danarollan dresinn DrPhil Dulla elliELITE ginny Girfan girlygirl Harris Hysteria ikea isak62 jonaxel laff1 LeBronJames LindeLou lobba maggiELITE Medicus MobyDick mrzombie Nedved neonballroom Neonlite Nugnar OfurAlli OfurKindin Onixx oRiley Padfoot pallipwner Pornent PuLsE RannugG Regza RuthlezzG saedis88 Samkaup sandrass siggiELITE sinsin Smokkfiskur snudda sonjal StolinKennitala SuperAnimal Supernanny tanbursti...

Svona... gormur... dæmi..... (3 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég man ekkert hvað þetta heitir. En ég hef séð myndir af fólki sem er með 3-4 göt í helix og er með svona gorm-líkt dæmi sem tengir götin. Er hægt að fá þannig á íslandi? Vitið þið hvort það sé hægt að tengja 2 helix göt með svona? Mér finnst þetta svolítið heillandi, og er að pæla í að fá mér kannski annað gat þarna uppi, við hliðiná því sem ég er með. Þyrfti ég þá ekki að vera búin að kaupa gormadæmið, svo að gatið sé rétt staðsett?

Ááánægð! (35 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Fyrir rúmlega mánuði bilaði tölvan mín. Ég var að vírusskanna hana í safe mode, skrapp út og keypti mér eina með öllu nema hráum, kom til baka og þá var hún bara dauð. Ég skoðaði þetta, og komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri líklegast straumbreytirinn (en þetta er fartölva. Keypt í júlí). Ég hef átt tölvu þar sem að móðurborðið dó, og ég hef verið með tölvu þar sem aflgjafinn dó. Og þetta var bara einhvernveginn öðruvísi. Daginn eftir sendi ég mömmu mína með hana fyrir mig í viðgerð, af...

b2evolution (9 álit)

í Blogg fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver prófað það? Ég er nýkomin með það, en verð að segja að ég er að fýla það í botn! Svo finnst mér persónulega það vera stór kostur að maður þarf að vera með eigin hýsingu fyrir það, það er eitthvað svo miklu persónulegra! Svo finnst mér “Blog A” “Blog B” fítusinn æðislegur! Ég er til dæmis með Blog A sem “Stuff” og Blog B er um síðuna sem ég er að vinna að. Forsíðan hefur svo allt. Linkur En já, er einhver með reynslu af þessu?

Greinar (0 álit)

í Heimilið fyrir 17 árum, 5 mánuðum
C'mon, allir, verið duglegri að senda greinar í greinaátakið!! Ég er forvitin og mig langar að vera stalker fyrir hvert eitt og einasta ykkar!

Eigin mistmaker! (6 álit)

í Heimilið fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Kærastinn minn er búinn að vera í fríi undanfarna daga, og er eitthvað búinn að vera bara að dunda sér heima á meðan ég er í vinnunni. Hann tók glæra skál, sem er með hringlaga botni og síðan “veggjum” sem koma beint upp. Eins og sívalningur sem er búið að skera ofan af. Það voru gulllitaðir og gráir steinar í því, síðan við vorum með einhverja gamla skreytingu. Hann setti vatn og grænt litarefni fyrir vatn í. Svo tók hann mist-tækið úr mistmakernum, og kom fyrir á botninum. Tók stál...

Útsala (6 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki hvort þið vitið af þessu, en það er geðveik útsala á hokkídóti í intersport :) Hún er held ég búin að vera í einhvern tíma, en mestallt dótið þar er á 50% afslætti.

Besta jólagjöfin (9 álit)

í Hátíðir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Jæja börnin góð Hver er besta jólagjöfin sem þið hafið fengið? Hver gaf ykkur? Eða er þetta kannski ljót spurning?

Nýtt tattoo (18 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Vildi bara deila með ykkur að ég var að fá tíma í nýtt tattoo :D Það er reyndar ekki fyrr en 15.des, en ég get ekki beðið :) Hver veit nema ég plati hann Búra til að gata augabrúnina mína í leiðinni :D

Hvernig (28 álit)

í Tungumál fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Hvernig lærið þið tungumálin sem þið kunnið? Lærið þið þau í skólanum (geri nú ráð fyrir að einhverjir svari því játandi), af vinum, á netinu, af diskum eða bókum á eigin spýtur?

Göt og atvinnulíf (31 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Hafið þið lent í einhverjum fordómum útaf götum á andliti? Mig langar svo hrikalega mikið að fá mér gat í augabrúnina, en ég má það ekki útaf vinnunni. Ég vinn hjá ríkinu, og verð alltaf að vera í fínum fötum og eitthvað rugl. Fyrsta daginn eftir að ég fékk mér tattoo vissu allir það þarna, það var víst voða shockerandi. Ég er að vinna út árið, byrja svo í skóla. Jú, ég gæti fengið mér gat þá, en ég ætla að sækja um þarna aftur í sumar :S svo ég veit ekki alveg hvað ég á að gera.. En segið...

Hugmynd að baki húðflúra (38 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Þið sem eruð með tattoo eða eruð á leiðinni að fá ykkur.. Hvernig fáið þið hugmyndina að mynd? Fáið þið ykkur hvað sem ykkur dettur í hug, eða verður að vera eitthvað *sterkt* að baki? Hvað hugsið þið ykkur lengi um? Væri ykkur sama þó að tugir aðrir á íslandi séu með eins tattoo og þið, eða viljið þið eitthvað einstakt? Bara smá pælingar hér á ferð :)

Hversu mörg? (32 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Úff, þetta er svo tómt, ég verð að setja eitthvað… Hversu mörg tattoo eruð þið með? Hversu stór (sirka, ég er ekki að biðja um nákvæmar tölur :p ) eru þau?

Akureyri (11 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Þetta ætti nú örugglega að fara á /ferdalog, en ég held að það fari enginn þangað… Veit einhver um góða, ódýra gistingu á Akureyri? Hafið þið gist á einhverjum stað þar sem þið mælið með?

Vantar ísskáp (0 álit)

í Heimilið fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Mig vantar ísskáp. Hann þarf að vera í kringum 170cm, og með rúmgóðu frystihólfi. Til greina kemur að setja 85cm ísskáp m/ litlu frystihólfi uppí. Verðhugmyndir óskast í einkaskilaboðum :) Kv. Moli

Jól (6 álit)

í Heimilið fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Jújú, þetta passar svosem líka á /jol, en ég held þetta megi alveg eins vera hérna líka ;) Hvernig er skreytt fyrir jólin hjá ykkur? Fáið þið sem búið hjá foreldrum eitthvað að ráða um hvernig það er utan herbergis ykkar? Þetta eru fyrstu jólin mín sem ég bý ekki hjá mömmu og pabba. Síðustu jólum eyddi ég þó erlendis, án þeirra. Foreldrar mínir setja seríur í flesta glugga. Þau eiga mikið af alls konar gömlu dóti, sem þau hengja útum allt. Svo er auðvitað jólatré :) Og já, aðventuljós í...

Útsölur (8 álit)

í Hátíðir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Veit einhver hvort það séu ennþá einhverjar útsölur í gangi á jóladótinu hérna á Reykjavíkursvæðinu? Málið er að ég er nýflutt í eigin íbúð, og þetta eru fyrstu jólin okkar ein. Ég á eina fjólubláa jólakúlu, og það telur allt skrautið okkar. Við ætluðum að kíkja í blómaval í gær, en ég er slösuð og má ekki gera neitt um helgina :( Þannig að ef þið vitið um eitthvað sem verður eitthvað áfram, endilega plís látið mig vita :) Kv. Moli0

Verkstæði (17 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Góðan daginn. Ég er með eitt stykki þverflautu í fórum mér, sem þarfnast viðgerðar. Nokkrir klappar á henni eru fastir og vilja bara engan vegin losna. Ég næ ekki í Tríólu í gegnum síma, en þeir löguðu eitt af klarinettunum mínum á sínum tíma og allt gekk eins og í sögu. Vitið þið um fleiri verkstæði / búðir sem gætu hjálpað mér? Flautan var keypt í Tónastöðinni, teljið þið líklegt að þeir geti hjálpað? Ég er búin að prófa að fikta pínu í skrúfunum með ponkulitlu skrúfjárni (sem ég fékk...

Hálsbólga :( (11 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Oooj ég er að drepast úr hálsbólgu!! Ég vinn hjá stóru fyrirtæki, og er í símanum mestallan daginn. Það er ógeðslga sárt að reyna að tala! Það er eins og það sé búið að stinga nál í aðra hliðina á hálsinu mínum. Kona sem er að vinna með mér segir að þetta gæti verið Streptakokkar (rétt skrifað?), sem að sökkar. Ég hef ekki tíma til að vera veik núna >_< Svo er ég með hósta, og klæjar í annað eyrað sem er undir headsettinu á símanum. Joy!

Skautarnir mínir (2 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég er búin að setja þetta á /hokki, en það er ekki beint virkt áhugamál. Þar sem það liggur á þessu, ákvað ég að gerast svo bíræfin að setja þetta hér líka. Ég á jofa hokkískauta sem ég keypti fyrir nokkrum árum. Einn daginn kom að því að einhver andskotinn helltist á þá, og ég ákvað að þvo reimarnar. Örfáum dögum síðar flutti ég í annað hús, og reimarnar virðast hafa týnst. Og eins og þið vitið væntanlega, er það ekki gott. Ég er búin að hringja í Útilíf, þar sem ég keypti þá, en þeir selja...

Reimar (4 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Þar sem þetta áhugamál er ekki beint það virkasta býst ég ekki við miklum svörum… En það má reyna!! Ég á jofa hokkískauta sem ég keypti fyrir nokkrum árum. Einn daginn kom að því að einhver andskotinn helltist á þá, og ég ákvað að þvo reimarnar. Örfáum dögum síðar flutti ég í annað hús, og reimarnar virðast hafa týnst. Og eins og þið vitið væntanlega, er það ekki gott. Ég er búin að hringja í Útilíf, þar sem ég keypti þá, en þeir selja ekki reimar sem passa. Intersport og Litla hokkíbúðin...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok