Kannski ekkert besta og mest djúsí nöldur allra tíma, en…

Það er einhver hátíð í dag í vinnunni, afmælishátíð, og við eigum að vera ógeðslega hress og sæt og eitthvað, en ég get það ómögulega. Ég er að fara í endajaxltöku klukkan 3 :S
Síðast þegar ég fór í þannig þá komst ég að því að ég er með feitt ofnæmi fyrir codeini, sem er víst í sumum tegundum verkjalyfja.. og íbúfen og panodil virka ekki sjitt. Þannig að ég vona að læknirinn viti um eitthvað gott sem er ekki of veikt, ekki of sterkt, og ekki með codeini.

Svo er partí á morgun sem mig langar svo hrikalega í, ég get eiginlega ekki misst af því… mér er sama þó ég drekki ekki, en mig langar svo að fara.