Ég man ekkert hvað þetta heitir. En ég hef séð myndir af fólki sem er með 3-4 göt í helix og er með svona gorm-líkt dæmi sem tengir götin.

Er hægt að fá þannig á íslandi? Vitið þið hvort það sé hægt að tengja 2 helix göt með svona?

Mér finnst þetta svolítið heillandi, og er að pæla í að fá mér kannski annað gat þarna uppi, við hliðiná því sem ég er með. Þyrfti ég þá ekki að vera búin að kaupa gormadæmið, svo að gatið sé rétt staðsett?