Góðan daginn.

Ég er með eitt stykki þverflautu í fórum mér, sem þarfnast viðgerðar. Nokkrir klappar á henni eru fastir og vilja bara engan vegin losna. Ég næ ekki í Tríólu í gegnum síma, en þeir löguðu eitt af klarinettunum mínum á sínum tíma og allt gekk eins og í sögu.

Vitið þið um fleiri verkstæði / búðir sem gætu hjálpað mér? Flautan var keypt í Tónastöðinni, teljið þið líklegt að þeir geti hjálpað?
Ég er búin að prófa að fikta pínu í skrúfunum með ponkulitlu skrúfjárni (sem ég fékk fyrir klarinett), en það gekk ekkert.