Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Öryggi í Formúlu 1 - seinni hluti (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum, 12 mánuðum
Hérna kemur svo seinni hlutinn af greininni. 2001- 2001 eru settar skýrari reglur um hvernig keyra megi læknabílana þegar öryggisbíllinn er á ferðinni eða undir rauðu flagg. Öll ökumannssæti þarf að vera hægt að losa með sama (eða engu) áhaldi og án þess að skera á sætisbeltin. Björgunarlið á brautum eru útbúin sérstökum tækjum til að skera í gegnum koltrefjar. Dekk eru núna fest með tveim keðjum í stað einnar og öryggisreglur fyrir brautarstarfsmenn eru auknar. 2002 leyfir FIA að gögn séu...

Öryggi í Formúlu 1 - fyrri hluti (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum, 12 mánuðum
Í kjölfar útafakstursins hjá Kovalainen í Spánarkappakstrinum núna um helgina fór ég aðeins að hugsa um það hve heppinn hann hafi í raun og veru verið. Ef þetta hefði gerst fyrir ekki svo mörgum árum, er ekkert víst að hann hefði sloppið jafn vel og raun ber vitni. Þá kviknaði líka hugmynd að þessari grein um þróun öryggis og öryggisbúnaðar í formúlu 1 kappakstrinum. Ég ætla samt að biðjast afsökunar strax á því ef einhverjar staðreyndarvillur hafa læðst með þar sem síðurnar sem ég studdist...

Reglubreytingar fyrir 2007 tímabilið (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 17 árum, 1 mánuði
Jæja, þá er bara alveg að koma að fyrstu keppni ársins, og mér fannst kominn tími til að fjalla smá um þær reglubreytingar sem taka gildi fyrir þetta keppnistímabil. Þessar upplýsingar eru teknar af opinberu Formúlu 1 síðunni http://www.formula1.com og haslað yfir á íslensku af mér þannig að það hefur kannski eitthvað skolast til í þýðingu. Vélar Nú tekur gildi svokölluð ,,vélafrysting”. Það felst í því að vélar notaðar í tveim síðustu keppnum ársins 2006 verður að nota tímabilin 2007, 2008,...

Hin útvalda (2 álit)

í Smásögur fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Hún var ein af hinum útvöldu, leitari af Amas ættbálknum. Það var hennar verk að fylgja eftir sýnum öldungana. Það var einmitt ástæðan fyrir því að hún var á ferð í gegnum þennan dimma skóg, ein af mörgum sýnum öldunganna. Eftirlitshópur hafði ekki skilað sér aftur, hópurinn sem bróðir hennar var í. Þetta var sjálfsagt ekkert til að hafa áhyggjur af, en það var betra að vera viss. Raeg ættbálkurinn hafði verið að færa sig upp á skaftið að undanförnu. Hún hrökk upp úr hugsunum sínum þegar...

Keppnin í Malasíu (5 álit)

í Formúla 1 fyrir 18 árum, 1 mánuði
Það er ljóst að hitinn í Barhain tók sinn toll af vélunum því nokkur lið tóku þá ákvörðun, viljandi eða af nauðsyn, að skipta um vélar í keppnisbílum sínum. Þeirra á meðal voru Ferrari, Red Bull og BAR. Einhverjir aðrir skiptu líka um vélar í sínum bílum vegna bilanna í síðustu keppni og voru þess vegna ekki færðir aftur um 10 sæti. Þetta setti vissulega sinn svip á tímatökurnar, þar sem nokkrir ökumenn voru ekki að keppast að neinu viti um efstu sætin, sem þeir væru að berjast um, ef allt...

Keppnin í Barhain (2 álit)

í Formúla 1 fyrir 18 árum, 1 mánuði
Jæja, jæja, jæja. Þá er nú fyrsta formúluhelgin að baki og ýmislegt sem gekk á. Renault og Ferrari sýndu styrk sinn og McLaren lenti enn og aftur í vandræðum. Williams og Red Bull sýndu góða takta en Toyota var í tómu tjóni, ef svo má að orði komast. Það sem fyrst þarf að minnast á er nýja tímatökukerfið. Það er óhætt að segja að þessi útfærsla er mun skemmtilegri og áhorfendavænni en fyrra kerfi. Nú er alltaf eitthvað að gerast og mistök eins geta haft áhrif á frammistöðu annara, eins og...

Komandi tímabil (7 álit)

í Formúla 1 fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Nú er rétt um mánuður í fyrsta mótið í Barhain og ekki laust við að spenna sé farin að segja til sín, enda bendir allt til þess að spennandi tímabil sé framundan. Þess vegna ákvað ég að koma með mitt álit á því hvernig liðin og ökumennirnir eigi eftir að standa sig. Ég tek það fram að röðin á liðunum fer eftir lokastöðu í keppni bílasmiða á síðasta tímabili. Renault Af því sem fram hefur komið frá æfingum og öðru í kringum liðið, er ekki við öðru að búast en að þeir komi sterkir undan...

Lok tímabilsins (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Mér finnst alveg tilvalið í lok tímabilsins að nefna nokkra einstaklinga og lið, sem standa upp úr. Maður ársins Kimi Raikkonen: Það er eiginlega ekki hægt að segja annað en að Kimi sé maður ársins, jafnvel þótt að hann hafi ekki orðið heimsmeistari. Hann hefur staðið sig mjög vel á þessu ári, án þess að bíllinn hafi verið allt of áreiðanlegur. Fernando Alonso: Það er eiginlega ekki hægt að sleppa Alonso hér út, þótt ég sé alls ekki hrifin af honum. Hann er nú einu sinni yngstur allra til að...

Montoya og Ferrari (5 álit)

í Formúla 1 fyrir 19 árum
Óheppnin eltir McLaren liðið. Montoya meiðir sig og getur kannski ekki keppt, annar varaökumaðurinn kemst ekki niður í bílinn og því þarf að notast við hinn. Ferrari hefur líka gefið út þá tilkynningu að þeir muni notast við nýja 2005 bílinn í Barhain. Því mun ríkja mikil eftirvænting eftir þeirri keppni. Þegar Montoya kom til McLaren þótti þeim líkamlegt ástand hans ekki nógu heppilegt fyrir formúluna þannig að þeir fengu einkaþjálfara, til að koma Montoya í toppform. Nú er Montoya kominn í...

Hugleiðingar fyrir Malasíu (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég verð nú bara að viðurkenna að það er frekar lítil virkni á þessu áhugamáli en þá verður maður bara að gera eitthvað í því. Þannig að ég ákvað að setja inn hugleiðingar mínar fyrir Malasíu-kappaksturinn núna um helgina 19.-20. mars. Renault komu mjög sterkir til leiks í Ástralíu og virðast vera á góðum, hraðskreiðum bíl. Fisichella er með sjálfsöryggið í lagi og hefur ekki sparað stóru yfirlýsingarnar. Ég hef ekkert á móti því en það er nú bara búið eitt mót og alveg möguleiki á að...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok