Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Formúlan í Austurríki. (64 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Halló. Ég vil byrja á því að segja að ég er dyggur Ferrari aðdáandi og hef verið í mörg mörg ár. En ég verð að viðurkenna að nú fyrst í dag, þegar kappakstrinum í Austurríki lauk SKAMMAST ÉG MÍN fyrir að vera Ferrari aðdáandi. Ferrari er að gera þvílíka vitleysu, þetta er orðin alveg ótrúleg vitleysa. Sem Ferrari aðdáandi verð ég að segja að ég er hneykslaður og virkilega móðgaður að Barichello var látinn víkja fyrir Schuma. Þessar ákvarðanir liggja auðvitað ekki hjá þeim tveimur heldur hjá...

Keyrt á löggur (13 álit)

í Bílar fyrir 22 árum
Halló allir. Mig langar að segja frá 2 umferðaróhöppum sem ég hef lent í og í bæði skiptinn átti bíllinn minn í samskiptum við lögreglumenn sem voru ekki á vagt. Ég verð að viðurkenna að þetta var einn mesti aula og hálvitaskapur af minni hálfu en það sem gerðist í fyrra skiptið var að ég var að keyra í kópavogi í nýja hverfinu í Lindunum held ég og er á leiðinni að kaupa málningu í Hörpu. Ég er á jeppanum hans afa og afi situr í farþegasætinu, á götunni eru um 20 - 30 krakkar að vinna við...

Lokahönd lögð á Episode 2 (21 álit)

í Sci-Fi fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Halló. Ég var að rekast á skemmtilega frétt sem segir eftirfarandi. (Heimild Neðst) Það er búið að leggja lokahönd á handhóf skot (myndir hér og þar); leikararnir hafa allir klárað sitt; öll tónlist hefur verið tekin upp. Á hverjum degi nálgast Star Wars Episode 2 að verða kláruð fyrir útgáfudaginn sem verður 16 Mai. “Ég á enga aðra veröld en Star Wars í augnablikinu og ég elska það,” segir framleiðandinn Ick McCallum. “Við erum um það bil viku frá því að klára síðustu tökur á myndinni. Það...

Kennedy fjölskyldan (5 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Mig langaði aðeins til að hafa hér smá pistil um Kennedy fjölskylduna og segja frá tíma þeirra í nágrönnum. Fjölskyldan kom fyrst á sjónarsviðið í þætti nr. 2242 ef heimildir eru réttar. Þau fluttu öll saman á Ramsey götu frá sveitinni eftir að slúðursaga hafði komist út um að Karl hafði drepið einn af sjúklingunum sínum. Börnin voru fyrst mjög reið yfir þessum flutningum en tóku því síðar betur. Karl Kennedy (Alan Fletcher) Dr Kennedy var kallaður Karl, eftir Karl Marx. Pabbi hans var...

Söknuður, smásaga. (4 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Söknuður. Ég skrifaði þessa smásögu fyrir íslensku verkefni í fyrra, ég var þá á næst síðasta ári í menntask. (Fékk A+) Þessi saga endurspeglar helst ást, og þá er ég að meina ást sem einstaklingar deila með hvor öðrum sem eru lífsförunautar og eru svo heppnir að hafa fundið sálufélaga sinn. Svefn kemur ekki auðveldlega á næturnar. Sumar nætur, kemur kemur hann bara alls ekki. Þegar hann svo loksins kemur er hann alltaf hvíldarlaus. Draumar mínir eru alltaf helteknir af ásóknum, sérstökum...

Um að æfa hnefaleika (6 álit)

í Box fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hvert er nú hægt að fara til þess að æfa hnefaleika. Ég á heima í Hafnarfirðinum svo nálægt þar væri fínt en veit einhver hvort eithvað svoleiðis er í Hafnarfirði. Annars bara nálægt Hafnarf, væri gott.

Helen Daniels (10 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég veit að það er langt síðan en ég bara verð. Man einhver eftir Helen Daniels (Anne Haddy)??? Á einhver síðasta þáttinn með henni þar sem hún hætti. En hún var sú sem var búinn að vera lengst í grönnum (frá upphafi 1985 - 1997) hún varð að hætta vegna heilsu. Ég er búinn að fylgjast með grönnum frá upphafi (næstum) og sá virkilega eftir henni. Finnst það einhverjum öðrum en mér að leikarar í grönnum tolla frekar stutt? Ef einhver man eftir henni að þá bjó hún hjá Phil og hans fjölskyldu og...

Star Trek myndir dagatöl (4 álit)

í Sci-Fi fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég veit að þetta er dálítið fáránlegt en veit einhver hvar er hægt að fá (á íslandi) svona stór myndadagatöl með Star Trek? Ég átti svoleiðis 2 fyrir árið 2000 og þótti mjög vænt um þau. Þau hjálpuðu líka manni að missa ekki af þætti. Þau fengust alltaf annaðhvort í Skífunni eða Sammyndir held ég að hún hafi heitið í Kringlunni, en ekki lengur… Látið mig endilega vita. Takk
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok