Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Fyrsti Korkurinn (9 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Vúhú - ég var fyrstur. En að öðru. Ég byrjaði að spila Civilazation strax á fyrsta leik. Þeir urðu betri með tímanum fannst mér. En mig langaði að spyrja ykkur, hvað fannst ykkur um Civil 3? Annað, í sambandi við Alpha Centauri leikinn frá Cid Meyer. Er einhver annar í vandræðum með hann í Windows XP. Ég fann patchana enn lenti samt í vandræðum. Þurfti að finna e-h file, skipta einhverjum tölum og bölvað vesen…

Gamli góði Command & Conquer. (6 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Screenshot frá C&C. Hér sést spilari spila “Brotherhood of Nod” Þar sem Cane var yfirmaðurinn.

Command and Conquer - The First Decade (10 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Síðasta viðbótin frá Westwood.

Westwood og C&C (50 álit)

í Herkænskuleikir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ég sé að hér er mikið skrifað um tölvuleiki enda er þetta tölvuleikjaáhugamál. En mig langaði til að fjalla stuttlega um Westwood (m.ö.o. Electronic Arts) sem hannar, framleiðir og býr til hina frábæru C&C tölvuleiki. Leikirnir eru eftirfarandi: Command & Concuer Command & Concuer - The Covert Operations Command & Concuer - Red Alert Command & Concuer - Red Alert Counterstrike Command & Concuer - Red Alert, The Aftermath Command & Concuer - Tiberium Sun Command & Concuer - Tiberium Sun,...

bannaðir notendur (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég var að lesa nokkuð neikvæðan kork með neikvæðum athugasemdum um bönn og svoleiðis. Getur einhver sagt mér og bent mér á stað hér á huga.is þar sem upplýsingar koma fram hverjir eru bannaðir og fyrir hvað? Jafnvel hve lengi? Fyrir hvað er svo fólk bannað (fyrir utan það augljósa)?

Leiðbeiningabók með konum (43 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég er orðinn rosalega þreyttur á því að reyna að skilja alltaf hvað konan mín meinar eða er að hugsa… ég á alltaf að vita svoleiðis. Er ekki hægt að fá leiðbeiningar með þeim. Alveg ótrúlega leiðinlegt að við karlmenn höfum alltaf rangt fyrir okkur! Ekki satt? Í framhaldi af því sá ég soldið áhugavert á netinu sem ég þýddi og breytti. Það er það sem þið konur eigið að vita um okkur karlmennina. 30 Hlutir sem strákarnir viljum að þið vitið !!! 1. Við erum ekki allir eins miklir perrar og þið...

Þvo sér um hendur fólk!!! (90 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Segið mér hvað ykkur finnst. Ég fór í bíó um daginn, í hléinu fór ég á wc (ég er kk) til að pissa eins og margir gera. Það var nærri því fullur salur og margir fóru á klósettið. Þegar ég var að bíða eftir því að það losnaði pláss á pisseríinu tók ég eftir því að u.þ.b. 8 af hverjum 10 þvoðu sér ekki um hendurnar. Flestir skoðuðu sig bara eitthvað í speglinum og löguðu hárið, hinir gengu bara beint út. Hvað er í gangi fólk??? Þvoið þið ykkur ekki um hendurnar í bíó? Langar manni svo eitthvað...

Tyggjó undir borð + blásarar (32 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Ég veit að það er búið að nöldra um þetta hér áður en mér er alveg sama. Segið mér hvað ykkur finnst núna. Tyggjó undir borð - Já eða Nei Handblásarar á salernum - Já eða Nei

Háskóli Íslands (2 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Endastöð okkar flestra.

Tryggingar (4 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nú er maður í veseni við tryggingafélögin, TM vill ekki leyfa okkur að segja upp hjá sér en við erum nú þegar tryggð og búinn að borga hjá Verði (þeir eru miklu ódýrari). En TM þrjóskast við og leyfir okkur ekki að hætta hjá sér. Þetta eru meiri þjófarnir, ég skal segja ykkur það að ég tryggi aldrei neitt hjá TM og ég skal lofa því að reyna að telja öllum þeim sem eru tryggðir hjá þeim trú um það að þeir séu fyrirtæki djöfulsins. Við skiptum um eigendur á bílnum en það er ekki einu sinni...

Háskólinn í Reykjavík (0 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Háskólinn í Reykjavík staðsettur á móti Kringlunni og við hliðina á Verzló

Útskýringa á myndbandi (5 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Getur einhver maður útskýrt þetta fyrir mér… http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1159 Hvernig í "#$%$ er þetta gert, þetta er ótrúlegt ef þetta er satt. Ef þetta er ekki satt að þá hlýt ég að vera ljóshærðari en ég hélt.

Tyggjóið undir Borð! (9 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hver treður tyggjóinu sínu undir borð í skólanum eða bara einhversstaðar? Ég geri það alltaf og er stoltur af því. Hver prumpar alltaf eins hátt og hann/hún getur hvar sem hann/hún er? Ég geri það aldrei og hata það.

Nöldur í Bíó (14 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég hata fólk sem getur ekki haldið kjafti í bíó, og líka fólk sem fer með lítil börn á myndir sem það skilur ekki. Ég fór á Knigths Tale fyrir einhverju síðan í Kringlubíó og ég þurfti að sussa 4-5 sinnum á HELGA BJÖRNSSON söngvara sem gat ekki haldið kjafti. Ég ætla aldrei að kaupa neitt með honum framar. Svo hló þessi djöfull þegar ég sussaði á hann og hélt bara áfram að tala. Hvað heldur þetta fræga fólk eiginlega að það sé, það þyrfti að gefa svona fólki einn á hann þegar það hagar sér svona.

Merkjamyndirnar (5 álit)

í Hugi fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Veit einhver hvar hægt er að kaupa gömlu góðu dönsku merkjamyndirnar? (-tegn myndirnar) Ef þið vitið ekki hvað ég er tala um að þá þarf ég ég ekki að útskýra þetta betur.

Strætóbílstjórar (32 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég fór að hugsa í dag… Afhverju í veröldinni þurfa strætóbílstjórar alltaf að vera svona ógeðslega fýldir og fúlir allan helv… daginn??? Ég hef enn ekki rekist á neinn sem er kurteis eða bara “eðlilegur” Er málið að, lélegar tekjur = Verra skap?

Út að borða á Ítalíu (19 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hæhæ, ég fór út að borða á Ítalíu í gær með 7 manns úr fjölskyldunni. Við vorum kominn þangað klukkan 20:00 og fengum matinn ekki fyrr en 22:05. Við gengum út án þess að borða matinn því að við vorum virkilega fúl en þá var búið að hóta löggunni á okkur vegna þess að við fórum fram á það að fá fría drykkina. Þjónninn trompaðist við það og heimtaði að við borguðum drykkina. Ég fer ekki þangað aftur. Ef þið viljið að þá getið þið lesið betur um þetta á blögginu mínu....

Skrá sig af Huga (20 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hæ. Ég er ekki að segja að ég vilji skrá mig út af Huga.is en ég hef verið að leyta og ég sé hvergi hvar þetta er hægt að gera automatískt. Ef þetta er ekki hægt að þá finnst mér gífurlega asnalegt að vera með svona síðu og ekki einusinni bjóða uppá valmöguleikan á að skrá sig út. Hvað ef maður deyr? Ef einhver væri svo góður að benda mér á linkinn að þá anda ég léttar og biðst afsökunnar á þessum nöldursskilaboðum. Ennnnnnnn oooog aaaaftur ég er ekki að segja að ég VILJI skrá mig út, bara...

Tékklistinn hjá flugmönnum (12 álit)

í Húmor fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Eftir hvert flug skrifa flugmenn hjá sér atriði sem þeir tóku eftir á meðan þeir voru að fljúga sem fór í taugarnar á þeim. Svo fá flugvélavirkjarnir listana og fara yfir þá og skrifa niður hjá sér hvað þeir gerðu til að laga vandamálið. Þetta er einn af þeim listum frá Quantas Airlines í Ástralíu. Flugmaðurinn segir vandamálið og vélvirkinn segir hvað hann gerði til að lagfæra vandamálið. F: Flugmaðurinn V: Vélvirkinn. F: Vinstra dekkið að innan þarfnast fljótlega viðgerðar. V: Mun...

Sprengja í Táknmálskennslu í HÍ (2 álit)

í Skóli fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Góðan Daginn! Táknmálsfræði er 2 ára nám til 60 eininga í HÍ og hægt er að fara á þriðja árið og læra að vera táknmálstúlkur. Mikill skortur hefur verið á fólki í þetta nám og það vantar mikið af túlkum út á vinnumarkaðinn og þá sérstaklega karlmenn. Engir karlmenn eru núna að vinna sem túlkar en um 12 konur vinna við þetta núna + þær ágætu konur sem útskrifuðust núna úr HÍ 2004. Ef allt gengur eftir munu 4-5 konur útskrifast úr HÍ eftir þetta ár en ekki náðist nægur fjöldi til að kenna 2...

Box (0 álit)

í Box fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Vigtun á Holyfield 3. Mars gegn Ruiz

Star Wars (0 álit)

í Sci-Fi fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Falleg mynd úr myndinni attack of the clones.

Neighbours (0 álit)

í Sápur fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Harold alltaf jafn nettu

Sato ekki mikið meiddur. (7 álit)

í Formúla 1 fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Þær upplýsingar voru að berast á www.formula1.com að Heidfeld væri í góðum málum. Eins og flestir vita lenti hann í nokkuð alvarlegu slysi á hring 28 held ég þegar hann lenti í samstuði við Sato. Heidfeld kom fljúgandi yfir horn eftir að hafa misst stjórn á bíl sínum og tók Sató með sér út af brautinni. Sagt er að það hafi aðeins munað sentimetrum að hann lenti á Montoya. Sato fór í sjúkrabíl og öryggisbíllinn kom út, hann fór svo á spítala með þyrlu. Hann var með enginn brotin bein. Hann...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok