Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Fae
Fae Notandi frá fornöld Kvenmaður
68 stig
Chuck Norris getur deilt með núlli

NaNoWriMo? (0 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 7 mánuðum
www.nanowrimo.com Mér finnst þetta ótrúlega sniðug hugmynd…grunnhugmyndin er bara að frá 1.nóv til 30.nóv áttu að skrifa 50.000 orð. Þetta má vera ein saga eða margar litlar, þetta má hafa ekkert samhengi, þetta má vera um hvað sem er, eina sem þarf er 50.000 orð. Ég hef heyrt að þetta sé mjög góð leið til þess að bara losna við áhyggjur um hvort sagan verði góð, hvort einhver muni lesa hana o.s.frv. Eiginlega bara skrifa til þess að skrifa. Svo hafa margir sem tókst að skrifa 50.000 orð...

Afmæli (29 álit)

í Sorp fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Fyrir nákvæmlega ári sat ég fyrir framan tölvuna og skoðaði blogg vinkvenna minna. Eða, það sem ég taldi vinkonur mínar. Við sátum saman í tíma, töluðum saman, hittumst stundum. Ég var semsagt að skoða bloggið þeirra. Efst var einhver grein einnar stelpu sem ég þekkti eiginlega ekki, það var ekkert merkilegt. Skráð í dag. 12.júní. Ég lauk við að lesa og færði mig yfir á næstu. Ein stelpnanna var að fara í útilegu; Elska ykkur stelpur mun sakna ykkar<333;*. Skráð 12.júní. Næsta grein. Besta...

Nýársball Norðurbrekkuskóla, 8-10. bekkur. (16 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Sunna stóð fyrir framan spegilinn og var næstum brostin í grát. Afhverju gat hún ekki verið falleg eins og hinar stelpurnar? Afhverju gat hún ekki verið í ótrúlega fallegum kjól með svaka hárgreiðslu og fallega máluð. En nei, hún var í gömlum kjól af systur sinni, með leiðinlegt, slegið hár og ómáluð því mamma hennar leyfði henni ekki að mála sig. Hún sneri sér í hring, skoðaði sig að aftan en hvergi var hún skárri. Dökkt krullað hárið stóð út í loftið og leit úr eins og hálfgert afró og...

omg (0 álit)

í Forsíða (gamla) fyrir 16 árum, 2 mánuðum
skiluru tótallí

Gríma, Spegilmynd og fl. ljóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Þetta eru bara nokkur ljóð sem ég samdi fyrir svona hálfu ári. Gríma Ég lít í spegilinn og sé þar unga stúlku. Unga, hamingjusama stúlku. Ekkert vantar. Ekkert óþarft. Þessi stúlka býr í mér. Ég bý í þessari stúlku. Ég sé á bakvið augun. Ég heyri á bakvið eyrun. Ég kalla á bakvið munninn. En þú; horfir gegnum augun. Talar gegnum eyrun. Og heyrir gegnum munninn. Og veist, að þar er ég. Spegilmynd Ég gekk um eyðimörk og vildi finna vatn því ég hafði gleymt hvernig vatnið bragðast. Ég gekk um...

Linda og Ásta (0 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Ég var komi með geðveika sögu. Svo ýtti ég óvart á vitlausan takka og allt strokaðist út. Bömmer. Svo, hérna kemur bara eitthvað smá, því ég get ekki bara hætt við núna. Ég verð að setja eitthvað inn. ___________________________________________________ Elsku besta Linda Ég veit ekki hvernig lífið verður án þín. Við höfum verið stöðugt saman í fjórtán ár, og nú finnst mér ins og ég hafi misst einhvern hluta af mér. Aðra hendina eða fótinn. Mér finnst ennþá eins og þú komir bráðum og hoppir...

leyndarmálið (1 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 2 mánuðum
“Tanja” Ég tek um hendi hennar og leiði hana burt frá hópnum, út í horn. Ég tek um mitti hennar og hvísla í eyrað á henni. “Ég held að ég sé hrifin af Írisi” Hún horfir á mig með sorglegt bros. “æji.” hún tekur þéttar um mig og h´vilar á móti. “Þetta er allt í lagi.” en þetta er ekki allt í lagi. “nei. hún er ekki…” ég þarf ekki að klára. hún veit fullvel hvað ég er að tala um. “Mig grunaði það. Síðan þú.. sagðir mér að þú værir…” Ég strýk ímyndað tár úr auganu mínu. Ég hafði farið yfir...

Dagurinn sem dauðinn dó (15 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Þetta var voða venjulegur dagur. Drengirnir hlupu á veggjunum og eltu stelpurnar með gúrkur í höndum. Þær skræktu og skríktu eins og biðbjöllur og stukku í vatnið. Skyndilega heyrðist öskur. Þetta var ómannlegt öskur, þúsundfaldur styrkur. Þetta öskur nísti bein og braut rúður. Þetta öskur stakk málmplötum í eyru allra. Þetta öskur var öskur sem öskraði. Það var allir tónar veraldrar í einu. Það var á sama tíma brunabjalla og lágvært hvísl. Öskrið var öll dýr í heiminum. Svo var allt hljótt...

Spurning (0 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki hvað þetta er þetta sem ég finn, þegar ég horfi á þig ég finn það þegar þú brosir ég finn það þegar þú hlærð ég finn það þegar þú talar ég finn það þegar við horfumst í augu og mig langar. mig langar svo að spyrja þig spyrja, hvað þetta er en ég veit það ég veit hvað þetta er en ég vil bara ekki trúa að eg hafi fallið fallið aftur í sama farið því ég veit, að hvað sem ég geri ég veit að hvað sem ég segi þú munt aldrei elska mig á móti

Hugleiðingar í enskutíma (0 álit)

í Smásögur fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég sit í sætinu mínu. Ein, útí horni, eins og vanalega. Hann situr fyrir framan mig. Ég stari hugfanginn á hnakkann á honum. Sé fallegu brúnu lokkana. Og ímynda mér. En ég veit að ímyndun er til einskis. Ég veit að hvað sem ég hugsa oft um þetta og læt mig dreyma. Hann verður aldrei minn. Því það er sama hvað ég set mörkin lágt. Það skiptir ekki þótt ég verði hrifin f sætum, vinsælum stráki eða stráki sem enginn tekur eftir. Því að þeir verða aldrei hrifnir af mér. Ég er ekki sú stelpa sem...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok