Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Comar
Comar Notandi frá fornöld Karlmaður
194 stig

Kósý (7 álit)

í Rómantík fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Hæhæ, hafið þið einhver tips um það hvernig má skapa þægilegt andrúmsloft. Ég er kannski ekki beint í rómantískum hugleiðingum, en ég er að pæla að ef ég býð vinum og vinkonum yfir í góða kvöldstund, þá langar mig að íbúðin lykti þægilega. Lykt sem gefur róandi andrúmsloft. Ég held að reykelsi og ilmkerti séu ekki rétta málið, langar í eitthvað mildara og betra, eitthvað sem varir líka. Öll tips velkomin ;)

Asnalega tilvera (34 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Hér er málið. Er að fara hefja nám við Háskóla Íslands, hef samt afar takmarkaðan áhuga á því sem ég hef valið mér (valdi það því ég var að renna út á tíma og mér þótti valið skynsamlegt, burtséð frá því hvað mig langar í raun að gera). Svo núna þegar skólinn nálgast óðfluga er ég farinn að hafa virkilegar áhyggjur. Er ég að gera rétt? Á ég virkilega að gefa þessu séns? Ætti ég frekar að gera það sem heillar mig meira burtséð frá því hvað öðru fólki finnst? Ég óttast bara að gera mistök og...

Heilsufræði? (0 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég veit ekki alveg hvað það er sem ég er að spyrja um. Er að fara hefja nám í HÍ en er ekki alveg viss hvort það sem ég valdi muni henta mér. Kannski liggur áhugi minn annarsstaðar, t.d. í heilsu og líkamsrækt, næringarfræði og þess háttar. Veit einhver hvort til er nám sem sameinar þætti næringarfræði, líkamsrækt (einkaþjálfun) og heilsufræði? Nám á háskólastigi sem gefur góða atvinnumöguleika. Þá er ég að tala um eitthvað sem er meira en venjulegur einkaþjálfari (en þó ekki...

Hún er tilgangur minn... (72 álit)

í Rómantík fyrir 18 árum, 10 mánuðum
…og það besta sem komið hefur fyrir mig. Þetta hljómar eins og klisja, ég veit. Mér er sama. Ég ætla að verja þúsund árum í helvíti fyrir hana. Ég mun deyja fyrir hana. Ég mun fórna sálu minni djöflinum fyrir hana, þó hún muni aldrei komast að því eða þakka mér fyrir það. Hún er mér allt. Ég eyði tímanum í að hugsa um hana, þjáist þegar hún er ekki með mér, hugsa um það sem hún er að hugsa. Er ég að breyta stelpukjána í gyðju? Sál mín er svo dimm hennar vegna, þó ég reyni að vera glaður á...

Account creation+Pre-Paid cards (4 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ok er eitthvað sem ég er ekki að fatta. Ég keypti leikinn og það stendur á kassanum að fyrsti mánuðurinn sé frír. Ekki satt? Svo reyni ég að búa til account og þarf að velja Payment method. Ég vel að borga með pre-paid gamecard, því ég á ekki kreditkort. En ég get ekki haldið áfram að búa til account því ég á ekki pre-paid gamecard, enda eru þeir ekki einusinni byrjaðir að selja þau! Hversu fáránlegt er það? Fyrsti mánuðurinn á að vera frír. Getur einhver hjálpað mér?

Æfingar+Bakverkir (10 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Sæl öllsömul. Ég hef verið að lyfta svolítið undanfarna mánuði. Ég skokka líka mikið og stunda aðrar íþróttir. Ég er byrjaður að fá smá verki í bakið og hef svolitlar áhyggjur af því. Ég held það sé tengt maga og eða bakæfingunum sem ég notast við. Ég semsagt ligg á svona lyftingabekk sem er staðsettur upp við rimla og ég geri svona “crunches”. Semsagt crunches án undirstöðu, bakið snertir ekkert gólf á meðan ég geri æfingarnar. Bakæfingarnar eru eins, semsagt engin undirstaða, vöðvarnir sjá...

Ong-Bak (8 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver séð þessa mynd? Hún er algjör snilld. Flottir Muay Thai bardagar og ótrúleg áhættuatriði. Ef þið hafið gaman af slagsmálamyndum, þá verðið þið að sjá þessa.

WoW - Group support (9 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég og nokkrir vinir mínir ætlum að hafa smá Alliance grúbbu. Hér er það sem við erum komnir með: Human Paladin Dwarf Warrior Dwarf Hunter Human Wizard (fire magic) Þá er pláss fyrir einn í viðbót. Einhverjar tillögur um hvað væri heppilegt? Annar tank, meira heal support, meira damage support?

Einvígið Mikla (4 álit)

í Borðaspil fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta er einvígið mikla sem endaði illsku Hórusar, sonar Keisarans. Sanguinius liggur látinn og Keisarinn sér að eina leiðin til að binda enda á spillingu Hórusar er að tortíma honum.

Dark elves (7 álit)

í Borðaspil fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Á tvo kassa af dark elf warriors. 32 samtals. Ósamsettir og enn í kassanum. Hafið samband ef þið hafið áhuga, þetta fæst ódýrt.

Necrons til sölu (0 álit)

í Borðaspil fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Til sölu : Necron codexinn 12 necron warriors 3 scarab swarms Segið mér hvað þið viljið borga fyrir þetta og við getum samið um það. Ég er líka opinn fyrir að skipta fyrir Space wolves ( hugsanlega BA, ólíklegt þó ) Sendið mér póst :)

WoW - Mánaðarleg gjöld (1 álit)

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Eins og flestir vita verðum við sem ætlum að spila WoW að borga mánaðarleg gjöld, svo Blizzard geti haldið áfram að þróa heiminn o.fl. Veit einhver hvort verslanir, t.d. BT, muni bjóða upp á kort sem gilda í ákveðin tíma, eins og býðst til boða með EVE online ? Það væri mjög hentugt því ég er ekkert spenntur yfir því að fá mér Visa kort og borga yfir á netinu…

Anoreksía = Fegurð ( held nú síður ) (108 álit)

í Tíska & útlit fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég veit að stelpur eru sífellt að pæla í útlitinu og þá sérstaklega hvað þær eru þungar. Mig langar bara að segja að of grannar stelpur eru ekki flottar. Fjölmiðlar eru bókstaflega að heilaþvo ykkur ! Takið eftir því að ég er 18 karl. Það er satt að undirmeðvitundin á sér ákveðnar fyrirmyndir þegar konur og karlar leita sér að maka. Oftast eiga karlar að vera hávaxnir og sterkbyggðir og konur með breiðar mjaðmir og stór brjóst ( sem gefur karlinum til kynna að hún geti alið börn sín og sé...

Styrkur (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég hef fengið nóg af þessu viðbjóðslega rausi, þið talið og talið, kallið það list, í von um að komast á spjöld sögunnar og fá athygli, því líf ykkar er svo tilgangslaust og tómt. Ég mun stöðva ykkur, henda ykkur í sundurskorið og stríðstætt hold jarðar. Þar munið þið brenna í eldum og iðnaði 21.aldar, á meðan niðjar mínir hrækja í andlit barna ykkar. Svo gleymist þið…

Lizardmen (4 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hvenær kemur allt nýja Lizardmen draslið í Nexus ?

Dark elves her til sölu (3 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég á : Dark elf army book Malus darkblade 6 cold one knights 5 dark riders 3 shades 6 executioners með command 6 black guard með command 1 repeater bolt thrower 16 dark elf warriors 1 assassin 1 war hydra og 3 beastmasters 1 dark elf sorceress Svo getur verið eitthvað sem ég er að gleyma. Módelin eru flest límd en langflest bara undirkótuð.

DE chariots (4 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég á núna ágætis dark elves her og er að pæla að stækka hann. Eru chariots góð ? Hver er reynsla ykkar af þeim ? Af hverju ætti ég að hafa þau, af hverju ekki ? og svo framvegis

DE Chariots (1 álit)

í Borðaspil fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jæja, þannig er málum hagað að ég safna Dark Elves her og er kominn með ágætis her. Ég var að pæla, ef einhverjir aðrir dark elf spilarar eru hérna eða bara reyndir spilarar yfirleitt, borgar það sig að hafa chariots í hernum sínum ?

Þarf hjálp ! (4 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég er ekki vanur að koma á þetta áhugamál en kem hingað núna því ég þarf hjálp fljótt. Málið er að fyrir tveimur dögum kom yngri bróðir minn heim með kettling sem var blautur og svangur og við ákváðum að hýsa hann þangað til við fyndum eigandann. Tveimur dögum seinna fór ég að ganga í hús og viti menn, ég datt á rétta eigandann. Það var kona á milli 30-40 sem á í vandræðum með að losna við þennan kött, sem er læða, og systur hennar. Ef enginn tekur þá að sér verður þeim lóað á mánudaginn svo...

Beina leiðin eða valið... (4 álit)

í Spunaspil fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég ætla að hafa þetta stutt og þarf á áliti ykkar að halda. Hvort finnst ykkur skemmtilegra að spila í heimi þar sem hópurinn ræður hvet hann fer eins og t.d. í The Forgotten Realms og skapar þannig sín eigin örlög, eða að vera fastur á braut sem Dminn hefur skipulagt og maður getur EKKERT gert nema fljóta með ? Seinni hluturinn er nefnilega algengur í þeirri spilagrúbbu sem ég er í og við í hópnum myndum frekar vilja fyrri kostinn, en DMinn vill engu breyta.

Misskilin heimsspeki (25 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ég hugsa að það séu margir með ranga hugmynd af heimsspeki. Heimsspeki er ekki stunduð af sumum, heldur öllum, hver og einn hefur sína aðferð til að túlka veröld sína og þetta er ein af okkar aðferðum hér á Huga. Jafnvel vöðvastælti fyllirafturinn úti í bæ er heimsspekingur,ekki líta hann hornauga þó hann sé ekki með sömu ,,siðfáguðu“ hugmyndir og þú. Margir hér á Huga ( tek strangt til kynna ekki allir ) eru sífellt að reyna að koma nafni sínu á framfæri: ,, Halló, hér er ég og er mikill...

Hvað er Deja Vu ? (0 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum

Lífið er ein stór víma (9 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Gleði, sorg, reiði, hatur. Þetta er ekkert nema tilfinningar sem koma fram þegar heilinn gefur frá sér ýmis efni eins og serótín. Þannig að tilfinningar eru ekkert nema ákveðin víma. Ef einhver er þekktur fyrir að vera oft glaður, hlæjandi eða reiður þá er kannski vitlaust að segja að hann sé að persónuleika reiður eða glaður. Hann/hún er bara viðkvæmur/viðkvæm fyrir ákveðnum efnum. Svo að það eina raunverulega við okkur eru hugsanir okkar og gjörðir. Eða hvað finnst ykkur ?

Draumaheimur (4 álit)

í Heimspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég er með svona skrýtna hugmynd sem líkja má við the Matrix. Ef við værum nú í rauninni mjög háþróaðar lífverur, sem ættu ekkert lengur til að uppgvöta, ekkert til að kanna og það væri ekki lengur tilgangur með neinu, hvað myndum við gera til að stytta okkur stundir, til að gefa lífinu tilgang ? Hugsum okkur nú að þú sérst svoleiðis lífvera. Þú tengir heilann þig við ákveðinn draumaheim svo þú gleymir öllu um líf þitt á meðan þú ert í draumaheiminum. Þú fæðist sem þú og manst ekkert um þitt...

Sálarsýn (0 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Hafið einhverntímann horft lengi í andlitið í spegli ? Allt verður einhvernveginn þokukennt og andlitið á manni breytist og það er eins og maður sé að horfa á sálina sína. Ætli þetta sé bara eitthvað sem gerist í augunum eða er þetta eitthvað dulrænt ?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok