Ég er ekki vanur að koma á þetta áhugamál en kem hingað núna því ég þarf hjálp fljótt. Málið er að fyrir tveimur dögum kom yngri bróðir minn heim með kettling sem var blautur og svangur og við ákváðum að hýsa hann þangað til við fyndum eigandann. Tveimur dögum seinna fór ég að ganga í hús og viti menn, ég datt á rétta eigandann. Það var kona á milli 30-40 sem á í vandræðum með að losna við þennan kött, sem er læða, og systur hennar. Ef enginn tekur þá að sér verður þeim lóað á mánudaginn svo að ég þarf fljót viðbrögð. Ef þið hafið áhuga sendið mér sms í síma 691-5622 og ég mun gefa ykkur frekari upplýsingar. Ég get því miður ekki tekið þær að mér því foreldrar mínir kæra sig ekki um þá.