Eins og flestir vita verðum við sem ætlum að spila WoW að borga mánaðarleg gjöld, svo Blizzard geti haldið áfram að þróa heiminn o.fl. Veit einhver hvort verslanir, t.d. BT, muni bjóða upp á kort sem gilda í ákveðin tíma, eins og býðst til boða með EVE online ? Það væri mjög hentugt því ég er ekkert spenntur yfir því að fá mér Visa kort og borga yfir á netinu…