Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

BlackSun
BlackSun Notandi frá fornöld 45 ára kvenmaður
372 stig

Ég,thú,vid. (6 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 1 mánuði
Oskur umvefur huga minn. Ekki myrkt og ljótt oskur, heldur fognudur og gledi. Vid skiljum hvor adra á hátt sem enginn annar skilur. Eigum hver okkar sogu á sama tíma og vid eigum hver okkar leyndarmál. Deildum hluta af sálu okkar med hvor annari í kvold. Tvílíkur samruni,næstum cold fusion Get ekki útskýrt. Hjortu slá í takt Sálir tala sama tungumál. Líkamar sem skynja hver annann í tómarúmi raunveruleikans. Raunveruleikinn er oft svo hrár,grár kaldur og sársaukafullur. En á sama tíma...

Gríma kaldhædninnar. (9 álit)

í Ljóð fyrir 15 árum, 1 mánuði
Ég er týnd í helvíti. Sársaukinn grefur sig inn í mig dýpra og dýpra. Djúpt inn í innsta kjarna sálarinnar. Hjartað er brostið og sálin bara þolir ekki meir. Ég vil bara gleyma og fela mig. Dyljast undir grímu kaldhæðninnar og skilja veruleikann eftir í ruslinu. Vil ekki horfast í augu við staðreyndir. Vil bara gleyma,fela og týnast. Enginn má sjá tárin. Ósýnilegu tárin sem streyma niður vangana. Líkt og á sem hefur flætt yfir bakka sína. Vil segja frá öllu en orðin sitja föst. Þau vilja...

Darkness and Cold (3 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Im standing in the dark looking at the world through a peephole. Afraid that if i go out people are gonna see the war which is raging inside me. That they will see im not as strong as they thought. That im a broken soul trapped in the freezing cold that surrounds my whole beeing. I feel like a mouse stuck in a mousetrap Or a caged lion who will die before being in its right enviroment again. I wonder if i'll ever see the light of day again. Hopefully i´ll find a way out of the darkness...

Lífsbjörg. (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Farin frá mér fíknin er fegin ég anda léttar. Frjáls og glöð ég núna fer fulltrúi minnar stéttar Margt og mikið hef ég lært mun því ekki gleyma. Hjarta mitt þið hafið nært Í hjarta mínu þið eigið heima. Þvílík ykkar þekking er þroski ykkar og kraftur. Yndisleiki af ykkur ber Ykkur ég sé vonandi aftur. Visku ykkar þið veittuð mér. Vanda minn nú ég skil. Tryggð og traust þið sýnduð hér Takk fyrir það að vera til.

Svefninn langi (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Hafið svo blátt, svo fagurt en hrátt. Það gæti gleypt mig núna svona óundirbúna. Vil ég fara? Drukkna í þara. Eða vil ég vera og eitthvað við líf mitt gera? Ég kastast á milli og sál mína fylli til skiptist von og ótta vegna míns eigins geðþótta. Mér finnst ég svo lúin. Bæði á líkama og sál búin. Vil að þessar tilfinningar dofni og ég svefninum langa sofni.

Fortíðarbál. (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Um bætt og betra líf þig dreymir. Í veiku hjarta enn þú geymir. Von og trú á frið í hjarta svo eigir þú þér framtíð bjarta. Þú hugsar til baka. Sálarsorgir þig þjaka. Vilt helst öllu gleyma en veist þú verður að reyna. Reyna í fortíð að vinna og sál þinni að sinna. Þú verður að muna og slökkva á þínum innri funa. Því hjálp færðu enga á meðan hjartans sár menga. Þú verður að treysta og kveikja á ný í þínu hjarta neista.

Innri máttur. (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sé þig stara tunglið á. Skynjar það sem ekki má. Beiskja,myrkur, borin von. Blástu í þitt hjarta von. Ekki gleyma því sem er. Lífið stundum hjartað sker. en gleymdu ekki því sem þú átt. Trúðu og treystu á þinn innri mátt.

Crazy thoughts. (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Crazy thoughts go trough my head like a wild river in the forest of my emotions.

Við tvær,þú og ég. (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Við erum tvær týndar og litlar sálir. Villtar í skógi hjartans. Rötum ekki réttu leiðina. Týndar,villtar ……..gleymdar. Syndum í hafi fullu af tilfinningum. Gleði,sorg, hlátur,grátur. Erum hálf einmana. Því enginn virðist skilja okkur. Fiskarnir vilja ekki taka eftir okkur frekar en mannfólkið. Við erum hræddar við okkar eigin hugsanir. Hugsanir sem eru oft svo ótakmarkaðar og endalausar. Við erum pláneta föst í miðri loftsteinahríð. Allavega líður okkur stundum þannig. Mun einhverntímann...

Týnd,fundin......gleymd. (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þú ert óendanleg. Ekki hægt að útskýra, bara óendanleg. Föst í eilífðinni, týnd í algleymi. Finnst ei fyrr en í framtíðinni. Passaðu að það nái þér ekki því þá ertu gleymd.

Maðurinn með ljáinn. (5 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Lífið er oft svo gruggugt og grátt. Þú sérð ekki ljósið aðeins myrkursins mátt. Þú vilt ekki heyra, þú vilt ekki sjá. Þú sem að leitar að manni með ljá. Sá maður er dauðinn svo hlustaðu nú. Hann læðist og laumast. Hans ósk er helst sú… ….að fanga sem flesta og núna ert það ÞÚ!!

Svik mín og tál. (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég hugsa um traustið sem þú barst til mín. Saklausa tryggðin sem treystir svo blint. Traust sem er svikið af tapaðri sál. Traust sem er stungið með táknrænni nál. Traust sem vill gleyma, vill ekki tjá. Þá pínu,þá kvöl sem það eitt sinn sá.

Litla barnið/Litla ég. (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Gráttu nú barn mitt, gráttu þeim ört. Tárum sem frelsa, tárum sem sá. Sá yl í þitt hjarta svo þiðnar það skjótt Svo frostið ei lengur ríki þar hljótt.

Þitt er valið. (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Þú finnur þitt hjarta kveljast og þjást. Þú vilt sjá aftur það bjarta sem þú eitt sinn sást. Hjartað er kvalið, líkaminn sár. Þitt er nú valið bros eða tár.

Algleymi (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Sól,stjörnur regnbogi. Leysast upp í algleymi. Litir,geislar fegurð. Gera líf þitt að draumsýn.

Lítill fiskur,hákarl stór. (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Lítill fiskur syndir hratt. Hann er að flýta sér er að verða of seinn í mat. Hann syndir hraðar og hraðar. Hann tekur ekki eftir því að hann er eltur. Hann hlakkar til því það er uppáhaldsmaturinn hans í dag. Ormar og meiri ormar, ormakássa. Allt í einu er hann gripinn. Það er hákarl stór og mikill. Það er þá sem hann áttar sig á því að hann fær engan mat. Því hann er maturinn…. …..Aðalrétturinn.

Horfin bakvið ský (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Langar mig að hverfa??? Já soldið meira en þig grunar. Soldið meira en ykkur alla grunar… Hverfa þangað sem enginn sér mig… né heyrir. Þar sem engin talar nema sagt sé….FARÐU!! FARÐU,farðu,farðu!!!!! Við sjáumst bakvið næsta ský,rósrautt ský sem engin sér nema ég og þú,kannski ekki einu sinni þú….

Annar heimur. (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég sit hér ein og hlusta. Það er nótt og flestir líklega sofandi. Ég hlusta á kyrrðina, hún er svæfandi. Ég slaka öll á. Öll streita svífur í burt út í myrkrið. Mér finnst ég svífa líkt og ég sé á mínu eigin skýi. Ég loka augunum og læt sem ég sé í öðrum heimi. Langt í burtu frá áhyggjum,streitu og sorg. Þessi heimur er staður sem ég heimsæki þegar áhyggjur og ami hversdagsins yfirbuga mig. Hann hjálpar mér að slaka á og hugsa um hve lífið getur verið fagurt og gott ef maður einblínir ekki...

Brostið hjarta. (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Sársauki,söknuður og tár. Blautir hvarmar,þungur hugur allt er svart. Hjartað brotið,sálin sár allt svo kalt. Tilfinningar sem láta ekki að stjórn. Sársauki sem deyfist ekki, heldur eykst uns þú þolir ekki meir. Öskur sem bergmálar inní þér. Ekkert eftir nema tregi og tómleiki.

Þú. (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þú fangelsar hug minn. Ég get ekki hætt að hugsa, hugsa um þig. Þú ruglar í tilfinningum mínum. Ég veit ekki lengur hvað ég vil. Einn daginn þrái ég þig, annan daginn þoli ég þig ekki. Þú rífur tilfinningar mínar upp með rótum og flækir þær. Af hverju segirðu mér ekki hvað þú vilt? Þá kannski fengi hugur minn frið…

Aldrei að segja aldrei. (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég ætla aldrei að reykja. Ég ætla aldrei að drekka. Ég ætla aldrei að taka dóp. Ég ætla aldrei að trúlofa mig. Ég ætla aldrei að gifta mig. Ég ætla aldrei að eignast börn. Þetta sagði ég og hugsaði þegar ég var ung. En nú er ég fráskilin,tveggja barna móðir nýkomin úr meðferð. Skilaboð mín til ykkar eru því skýr Aldrei að segja aldrei!!

Grátur eftir hlátur. (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þú varst mér sem dóttir. Ég annaðist þig flesta daga og einnig sumar nætur. Ég sá þig þroskast dag frá degi. Þú varst eins og lítið,saklaust blóm, blóm sem þráir ylinn. Ég faðmaði þig og líf mitt fylltist gleði. Ég heyrði þig hlæja og allt varð bjart. Líf mitt virtist fullkomið. En hlátur getur breyst í grátur því þú varst tekin frá mér. Ó hversu mikið ég sakna þín. Og nú sit ég hér ein og græt, ekki fyrir framan aðra heldur græt ég hér í hjarta mér. Græt yfir því að fá ekki að sjá þig...

Angist sálarinnar. (6 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Þú öskrar!! Þú lemur!! En hvorugt virðist hjálpa. Sársaukinn er þarna enn. Hann vill ekki fara. Hann eykst og eykst uns þér finnst þú vera að springa. Þú öskrar HÆRRA, en sársaukinn hættir ekki. Þú lemur FASTAR, en sársaukinn vill ekki hverfa. Hvað get ég gert spyrðu sjálfan þig. Langt í fjarska heyrist svar hjá sál sem er að gefast upp ………..ekkert,ég get ekkert!!!!

ÁSTIN!!!!!!!!! (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Heit, mjúk & tælandi. Vekur upp nýjar tilfinningar. Tilfinningar sem vekja gleði en líka ótta. Ótta við það ókunnuga. Ótta við höfnun. Ástin er meira en bara gleði eða ótti. Heldur er ástin líka fegurð. Þú sérð lífið í öðru ljósi. Fallegu,björtu ljósi sem skín ekki aðeins á þig heldur alla sem í kringum þig eru. Þráin hun tengist líka ástinni. Þú þráir að vera hjá þeim sem þú elskar. Þú þráir að allir finni sömu skrýtnu,kitlandi tilfinninguna í maganum þegar ástvinur lítur á þá. Líkt og þú...

Óslökkvandi bál (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég brenn!!! Tilfinningar sem ég fæ ekki ráðið við brenna mig. Inní mér logar bál svo heitt, svo brennandi heitt að ef ég gæti snert það myndi líkami minn standa í ljósum logum. Þetta bál eru tilfinningar sem ég get ekki stjórnað. Tilfinningar sem buga mig. Ég get ekki slökkt þetta brennandi bál. ……………Því ég týndi slökkvitækinu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok