Ég er týnd í helvíti.
Sársaukinn grefur sig inn í mig
dýpra og dýpra.
Djúpt inn í innsta kjarna sálarinnar.
Hjartað er brostið
og sálin bara þolir ekki meir.

Ég vil bara gleyma
og fela mig.
Dyljast undir grímu kaldhæðninnar
og skilja veruleikann eftir í ruslinu.
Vil ekki horfast í augu við staðreyndir.
Vil bara gleyma,fela og týnast.

Enginn má sjá tárin.
Ósýnilegu tárin
sem streyma niður vangana.
Líkt og á sem hefur flætt yfir bakka sína.
Vil segja frá öllu en orðin sitja föst.
Þau vilja ekki koma.
Ég er föst í neti
sjálfsblekkingar og fordóma.