Sé þig stara tunglið á.
Skynjar það sem ekki má.
Beiskja,myrkur,
borin von.
Blástu í þitt
hjarta von.


Ekki gleyma því sem er.
Lífið stundum hjartað sker.
en gleymdu ekki
því sem þú átt.
Trúðu og treystu
á þinn innri mátt.