Ég hugsa um traustið
sem þú barst til mín.
Saklausa tryggðin
sem treystir svo blint.


Traust sem er svikið
af tapaðri sál.
Traust sem er stungið
með táknrænni nál.


Traust sem vill gleyma,
vill ekki tjá.
Þá pínu,þá kvöl
sem það eitt sinn sá.