Um bætt og betra líf þig dreymir.
Í veiku hjarta enn þú geymir.
Von og trú á frið í hjarta
svo eigir þú þér framtíð bjarta.


Þú hugsar til baka.
Sálarsorgir þig þjaka.
Vilt helst öllu gleyma
en veist þú verður að reyna.


Reyna í fortíð að vinna
og sál þinni að sinna.
Þú verður að muna
og slökkva á þínum innri funa.


Því hjálp færðu enga
á meðan hjartans sár menga.
Þú verður að treysta
og kveikja á ný í þínu hjarta neista.