Það er ótrúlegt hvað það er hreint FRÁBÆRT að búa hérna á þessu landi, við höfum glimrandi hresst fólk eins og Völu Matt, Andreu og svo má ekki gleyma Svala, Einari Águst og Heiðari á FM til að lífga upp á tilveruna.
En einhvern tímann fær maður nóg af öllu þessu súper jákvæða viðhorfi, þetta fólk er í vinnu við að heilaþvo okkur og láta okkur halda að Justin Timberlake og Britney Spears séu cool og fM rúli og Völu Matt tókst næstum því að láta mig að Leoncie væri töff!
Svona súper stemmning lætur fólk skammast sín fyrir að vera ekki alltaf “Mr. Happy”.
Þannig að núna skora ég á allt fjölmiðlafólk til að koma fúlt í útsendingu allavega einu sinni bara til að prófa!

PS. Ég er alltaf súperhress…ég er bara að skrifa þessa grein fyrir alla hina sko!