Oftast þegar mann dreymir eitthvað vaknar maður áður en eitthvað slæmt gerist. En ég hef stundum lent í því að deyja í draumi og finna það gerast. Mig dreymdi til dæmis einhverntíma að ég var skotinn í kviðinn og fann hvernig ég lyppaðist niður og varð máttlaus í líkamanum. Ég var með litla skammbyssu í hendinni og þegar ég lá á maganum reyndi ég að beina byssunni að þeim sem skaut mig og sá þá þegar hann miðaði með riffli á hausinn á mér og skaut svo. Þetta var soldið cool af því ég fann kúluna fara í ennið á mér og allt varð svart um leið. En samt reyndi ég að lyfta hendinni í síðasta skipti og taka í gikkinn, en svo fann ég hendina bara detta niður þessa fáu cm. sem ég hafði náð að lyfta henni og ég fann hvernig ég dó og þá fyrst vaknaði ég.
Það væri gaman ef einhver gæti ráðið í þetta.