Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Artí-fartíljóð (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
þetta ljóð er reyndar eftir mig og félaga minn Þorbjörn frá Klöpp en við gáfum út saman bókina Skrafl árið 2000 artí-fartíljóð Ó, þú foss ótta og leyndarmála, ó, gróður sjávar og lenda, kenndu mér niðinn. Sýndu mér farveg þinn til eilífðar. Syntu sjávarþang, sjávarþang til mín. Ég er sjór hugans, hjá mér ert þú ég. Ég er þang, ég er kona, ég er lífið. Vei þér hugur, vei þér nart sjávarfugla. Heift mín og angist speglast í sandinum. Heyr mig himnasmiðir, heyr mig móðir, brjóst þitt ól mig,...

Dátinn (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
í rúminu liggur hún látin lætur ei á sér bæra í myrkrinu dapur er dátinn drunginn er´ann að æra blóði drifinn drengurinn dregur hníf úr maga illa farinn fengurinn fljótt nú þarf að saga fjötraður í forna hlekki fallni dátinn grætur vonar að vofurnar ekki vekji sig um nætu

Buckley (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
syndandi í sælunnar glaumi sá ekki að dauðinn hló loksins hann lét undan straumi lognaðist útaf og dó.

Sómalía (9 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
still starving still dying have u forgotten all about us? still poor still crying don´t u remember the suffer? still praying still trying never forget us we do exist. langaði að senda inn eitt svona há-dramatískt, það er ekki mín sterkasta hlið eins og þið kannski sjáið…

i miss (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
we were alone in the world but together we had it all we had nothing but each other * we had beer without clothes without weed * we were together in the world but now alone. Ákvað að semja þetta ljóð eftir að hafa heimsótt vinkonu mína sem sagði mér frá sambandi sínu við strák í öðru landi og hvað hún saknaði að hafa ekki lengur þetta “mood”. *þessi kafli þarf ekkert að lesast með, hefur bara persónulegt gildi hjá mér :)

bið (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Á myrkum, köldum stað illa lyktandi, illa útlítandi liggja matvælin og bíða eftir að verða uppgötvuð. Fyrir utan, hreyfingarlaus illa lyktandi illa útlítandi liggur eigandinn og bíður bíður eftir engu.

Óður (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Óreglusamur, vaknar þunnur Órakaður, fer á fætur Ólaglegur, ekki sætur Ósofinn, fer á rúntinn. Óökufær, startar bílnum Óábyrgur, leggur af stað Ólöglegur, yfir á rauðu Ótillitssamur, nema hvað? Óheppinn, bremsan bilar Óttasleginn, orðinn rauður Óspenntur, keyrir á Óviðbúinn, vaknar dauður.

Ljósleit (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í eilífri leit að ljósi sveima ég út um allt afhverju ég leita að þessu ljósi veit ég ekki alveg en ég held í vonina að það komi einhverntímann í ljós.

Gleðinnar dyr (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í makindum mínum flýti ég mér hægt inn um gleðinnar dyr. Í flýti fer ég mér hægt út um gleðinnar dyr. Mitt á milli stend ég í stað í dyragættinni.

The Return of (t)He-Man (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í skúmaskoti tímans hvílir maður -maður með mission- Hann hefur beðið í myrkrakompu tízkunnar -beðið eftir frelsi- Hann man tímana tvenna -þvílíkir tímar- Hann barðist gegn ranglæti með réttlæti -rétt eins og Benjamín Dúfa- Hann barðist við Skeletor og hans menn -en ekki einn- Hann hafði nefnilega sína eigin menn -og konur- En skyndilega braut ljósglæta í gegnum myrkrið -þeim var borgið- Já He-Man er snúinn aftur -aftur á meðal manna- Hann hefur upp raust sína -og segir; ,,My name is Man,...

Í miðjum frönskutíma (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það var í miðjum frönskutíma að ég fattaði að ég kynni jafnvel hebresku betur en frönsku.

Með regnbogann í augunum (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
þetta ljóð gerði ég í íslenskutíma því við vorum að fjalla um myndlíkingar og ég ákvað að búa til eitt yndislega væmið uppá grínið. þetta er afraksturinn: Með regnbogann í augunum Það er blindandi að vakna með regnbogann í augunum. Ég lít undan og út um gluggann og horfi á sólargeislana renna sér á skíðum niður fjallshlíðarnar. Ég ligg í rúminu og stari á gullpottinn sem leynist undir regnboganum. Ég velti því fyrir mér hversu lengi boginn endist og hvort potturinn verði alltaf þarna....

Fangi geðveikinnar (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
,,Ein ég sit og sauma, inní litlu húsi enginn kemur að sjá mig nema litla músin. Hoppaðu upp og lokaðu augunum, benntu í vestur, benntu í austur, benntu á þann sem að þér þykir bestur." raulaði hún í spennitreyjunni sinni og klappaði öllum litlu bleiku músunum sem dönsuðu í kringum hana.

Upprisa holdsins (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Í pottinum um daginn uppgötvaði ég upprisu holdsins í sinni verstu mynd, það var eins gott að sundlaugin var köld.

fluga á vegg (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
ég vildi að ég væri fluga á vegg því þá þyrfti ég aldrei að vaska upp.

Andinn kom yfir mig (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Andinn kom yfir mig þar sem ég lá grunlaus í rúminu. Andadrátturinn var í byrjun léttur og þægilegur en varð smá saman þyngri og þyngri. Ég vaknaði daginn eftir fullnægð og fín með ljóð í maganum.

Brostin hjörtu og brákuð bein. (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
þetta ljóð samdi ég þegar ég var 17 og lennti í fyrstu ástarsorginni, finnst þetta bara fyndið núna :) Brostin hjörtu og brákuð bein. ÉG rakst á þig á ballinu í gær það var vont, ég brákaðist á hendi. Ég hafði ekki séð þig síðan þá síðan þú komst mér svo skemmtilega á óvart með því að segja mér upp. Ég varð eins og hálfviti, hefði gert mig að fífli ef ég væri það ekki fyrir. Mér varð skyndilega kalt og stirðnaði allur upp, í losti var ég fluttur til læknis. Ég rakst á þig á ballinu í gær,...

Svoleiðis (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
svo sæt og fín svo ungleg svo æsandi og heit svo lítil svo saklaus og hrein svo ólögleg.

Ég hitti hana (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég hitti hana í kjörbúðinni sleykti útum. Ég tók hana með mér heim hugsaði mér gott til glóðarinnar. Ég smurði hana í allskonar olíum bjó mig undir notarlega kvöldstund. Ég hálshjó hana og steikti og hafði hana í kvöldmat.

Háu ljósin (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Á löglegum hraða þeysist ég um bæinn, fæ blikk frá bílum sem mæta mér, blikka á móti með bros á vör og gleðst yfir vinsemd bæjarbúa. Meira aða segja lögreglan blikkar mig á fullu!

kynhneigð (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
,,tunglið tunglið taktu mig" hvíslaði nunnan og slefaði.

Einu sinni var en er ekki lengur (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Ég man þá tíma er við lékum okkur saman á ströndinni og þegar við gerðum at í gömlu konunni þar til hún varpaði öndinni. Ég man þá tíma er við lékum okkur saman í snjónum og köstuðum snjóboltum í blinda fólkið fyllta af grjónum. Ég man þá tíma er við lékum okkur saman í laugunum og kaffærðum litlu ósyndu krakkana þar til þau grétu úr sér augunum. já við áttum okkar góðu stundir en allt gott tekur enda og það átti líka við um okkur því í bæinn flutti stelpa stelpa sem aðeins annar okkar gat fengið.

Fastur uppá fjalli (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Er búinn að vera að vesenast í þessu ljóði í nokkra mánuði, viljið þið segja mér hvort það sé eitthvað vit í þessu eður ei. er ekki alltí lagi þótt nokkrar línur séu lengri en aðrar, mér finnst þetta passa en kannski finnst ykkur annað. takk :) Fastur uppá fjalli Fastur uppá fjalli enginn heyrir þótt ég kalli bensínið er búið liðið orðið lúið von öll virðist úti drekk ég vín af stúti farið er að dimma kemur nóttin grimma fætur farnir að dofna en við megum ekki sofna fólkið orðið hrætt...

Draumur til sölu (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
,,draumur til sölu, draumur til sölu.“ einfætt fórnarlamb stríðs styður sig við hækjurnar eitt á torginu með draum til sölu ,,draumur til sölu, draumur til sölu.”

skáldið (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Þreytt á álaginu þreytt á taugum og þreytt á svefnleysinu barði skáldið hausnum í vegginn. Þreytt á rími þreytt á stuðlum og þreytt á höfuðstöfum tróð skáldið byssuhlaupi upp í sig. Þreytt á þreytunni þreytt á sjálfu sér og þreytt á lífinu tók skáldið í gikkinn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok