Andinn kom yfir mig
þar sem ég lá
grunlaus í rúminu.
Andadrátturinn var í byrjun
léttur og þægilegur
en varð smá saman
þyngri og þyngri.
Ég vaknaði daginn eftir
fullnægð og fín
með ljóð í maganum.