Þreytt á álaginu
þreytt á taugum
og þreytt á svefnleysinu
barði skáldið hausnum í vegginn.

Þreytt á rími
þreytt á stuðlum
og þreytt á höfuðstöfum
tróð skáldið byssuhlaupi upp í sig.

Þreytt á þreytunni
þreytt á sjálfu sér
og þreytt á lífinu
tók skáldið í gikkinn.