Í makindum mínum
flýti ég mér hægt
inn um gleðinnar dyr.

Í flýti
fer ég mér hægt
út um gleðinnar dyr.

Mitt á milli
stend ég í stað
í dyragættinni.