Á löglegum hraða
þeysist ég um bæinn,
fæ blikk frá bílum
sem mæta mér,
blikka á móti
með bros á vör
og gleðst yfir vinsemd bæjarbúa.
Meira aða segja lögreglan
blikkar mig á fullu!