Í skúmaskoti tímans hvílir maður
-maður með mission-
Hann hefur beðið í myrkrakompu tízkunnar
-beðið eftir frelsi-
Hann man tímana tvenna
-þvílíkir tímar-
Hann barðist gegn ranglæti með réttlæti
-rétt eins og Benjamín Dúfa-
Hann barðist við Skeletor og hans menn
-en ekki einn-
Hann hafði nefnilega sína eigin menn
-og konur-
En skyndilega braut ljósglæta í gegnum myrkrið
-þeim var borgið-
Já He-Man er snúinn aftur
-aftur á meðal manna-
Hann hefur upp raust sína
-og segir;
,,My name is Man, He-Man and i got the power."
-the power of Greyscull!-