Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

crazy
crazy Notandi frá fornöld 2.684 stig

Enska 1. deildin hófst í dag: (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Barnsley - Norwich 1:0, Blackburn - Crystal Palace 2:0, Bolton - Burnley 1:1, Fulham - Crew 2:0, Gillingham - Stockport 1:3, Grimsby - Preston 1:2, Huddersfield - Watford 1:2, Nott Forest - WBA 1:0, QPR - Birmingham 0:0, Sheff Utd - Portsmouth 2:0, Wimbledon - Tranmere 0:0

Ómar lék best í dag en Björgvin enn með forystu (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Björgvin Sigurbergsson, GK, hefur forystu í meistaraflokki karla að loknum þriðja keppnisdegi á Landsmótinu í goli sem nú stendur yfir á Akureyri. Björgvin, sem er núverandi Íslandsmeistari, hefur þriggja högga forystu á Harald H. Heimisson sem er í öðru sæti. Keppni lýkur á morgun, sunnudag.

Björgvin og Kristín Elsa halda forystunni á Landsm (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Keppni er langt komin í meistaraflokkum á þriðja keppnisdegi Landsmótsins í golfi sem fram fer á Akureyri. Íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson heldur enn forystu í karlaflokki og Kristín Elsa Erlendsdóttir er sem fyrr efst í kvennaflokki.

Dorgað við Húsavík (1 álit)

í Veiði fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Svokallaðir Mærudagar eru haldnir nú um helgina í Húsavík. Þar er margt til gamans gert, m.a. fór fram dorgveiðikeppni í morgun. Á myndinni, sem Hafþór Hreiðarsson tók, sjást systkinin Ólafur og Þóra Kristín ásamt Birgi vini sínum með vænan fisk úr sjó.

Hucknall ánægður í Kjósinni (1 álit)

í Veiði fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hann lengist listinn yfir fræga fólkið að utan sem kemur hingað til lands í ýmsum erindagjörðum. Nú síðast var hér staddur Mick Hucknall, söngvari hljómsveitarinnar Simply Red, ásamt Chris DeMargary, saxófónleikara sveitarinnar og voru þeir að veiðum í Laxá í Kjós í þrjá daga. Luku þeir veiðum á hádegi á þriðjudaginn og höfðu sex laxa upp úr krafsinu. “Mick var hæstánægður. Ég held að hann hafi varla vitað hvað veiðistöng var áður en hann kom hingað, en samt veiddi hann flesta laxa þeirra...

Eystri Rangá siglir fram úr Norðurá (0 álit)

í Veiði fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Eystri Rangá er í þann mund að taka forystusætið sem Norðurá hefur haldið í allt sumar. Nú undir lok vikunnar voru báðar komnar með vel á fjórtánda hundrað laxa, en miðað við gang mála, aðeins tímaspursmál hvenær Rangáin sígur fram úr, ef hún hefur ekki þegar gert það, enda hefur veiðiskapur þar gengið afar vel að undanförnu á sama tíma og Norðurá hefur dalað.

Ottó jafnaði vallarmetið og hefur þriggja högga fo (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ottó Sigurðsson úr GKG hefur þriggja högga forystu eftir fyrsta hring í meistaraflokki karla á Landsmótinu í golfi, sem fram fer á Jaðarsvelli á Akureyri. Hann lék á 67 höggum í dag, fjórum höggum undir pari, og jafnaði vallarmetið. Björgvin Sigurbergsson, Íslandsmeistari frá því í fyrra, er í öðru til þriðja sæti ásamt Ingvari Karli Hermannssyni á 70 höggum.

20 leikmenn valdir fyrir leikina gegn Þýskalandi o (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið 20 manna hóp fyrir leikina gegn Þýskalandi og Úkraínu í Evrópukeppninni sem fram fara 17. og 22. ágúst. Fyrri leikurinn er gegn Þjóðverjum á Kópavogsvelli en sá síðari gegn Úkraínu á Laugardalsvelli.

Leikmaður Charlton drukknar á æfingu (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Sautján ára leikmaður unglingaliðs enska úrvalsdeildarfélagsins Charlton Athletic drukknaði í æfingubúðum á Englandi í gær. Liðsmenn unglingaliðsins voru við þrekæfingar í aðstöðu breska hersins í Aldershot þegar slysið varð. Lögregla á staðnum hóf þegar í stað rannsókn á tildrögum slyssins.

Montgomerie fer á kostum á Woburn (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Skotinn Colin Montgomerie hóf keppni á breska Masters-mótinu í golfi með glæsibrag í dag. Hann lék fyrsta hringinn á 64 höggum, eða átta höggum undir pari vallarins, en Mark McNulty, sem einnig lék frábærlega í dag, var annar á 65 höggum. Vallarmetið á Woburn vellinum er 63 högg og hjó Montgomerie því afar nálægt því.

Ísland tapaði fyrir Finnum (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði fyrsta leik sínum 44-80 fyrir Finnum á Norðurlandamótinu í körfubolta sem fram fer í Björgvin í Noregi. Úrslitin gefa reyndar ekki alveg rétta mynd af leiknum og til að mynda var staðan í hálfleik 26-34 Finnum í vil. Það var hins vegar síðasti fjórðungurinn sem helst gerði þennan mun en þar gekk íslensku stúlkunum frekar illa.

Eyjamenn töpuðu (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Eyjamenn lutu í kvöld lægra haldi fyrir fyrir skoska liðinu Hearts í fyrri leik liðanna í Evrópukeppni félgslið. Gestirnir skoruðu tvö mörk gegn engu marki ÍBV á Laugardalsvellinum. Eyjamenn áttu lítið í leiknum og virtust hálf tregir við að taka á Skotunum sem unnu nánast hvert einasta návígi. Fyrri hálfleikur var markalaus en snemma í síðari hálfleik komust gestirnir yfir með góðu skallamarki Scott Severin. Eftir það var nokkuð ljóst hvort liðið myndi bera sigur úr býtum og Darren Jackson...

Harry Potter-tölvuleikir væntanlegir á markað (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Electronic Arts Inc.,stærsta tölvuleikjafyrirtæki í heimi, hefur öðlast réttinn til að þróa, gefa út og dreifa tölvuleikjum byggða á bókunum vinsælu um Harry Potter. Fyrirtækið ætlar sér að gefa út leiki byggða á öllum þeim fjórum Harry Potter bókum sem gefnar hafa verið út, auk þess sem kvikmynd verður gerð og jafnvel framhaldsmyndir af henni.

hlaupahjólin (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Í sumar lítur út fyrir að Íslendingar ætli að fylgja tískustraumum erlendis frá og taki upp hlaupahjólreiðar. Að hlaupa á hjóli er vinsæll ferðamáti í stórborgum Evrópu og Bandaríkunum og ekki að furða þar sem hjólið er áberandi einfalt í notkun. Hjólin koma í öllum stærðum og gerðum og hægt er að fá þau með eða án mótors. Eðlilega er meiri hreyfing í að spyrna sér á hjólinu en mótordrifin hlaupahjól eru girndarlega ákjósanleg …

Birgir Leifur lék vel (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnumaður í golfi, lék í dag á tveimur höggum undir pari á móti í bresku mótaröðinni sem fram fer í Dublin. Þetta var annar hringurinn en í gær lék hann á tveimur yfir pari í erfiðum aðstæðum en mjög hvasst var meðan leikið var. Birgir Leifur er því á pari og var hann í öðru sæti af þeim sem lokið höfðu keppni í dag en um helmingur átti enn eftir að klára. Hann fékk sex fugla á holunum átján en var óheppinn á nokkrum holum og fékk fjóra skolla.

Birgir Leifur lék vel (1 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnumaður í golfi, lék í dag á tveimur höggum undir pari á móti í bresku mótaröðinni sem fram fer í Dublin. Þetta var annar hringurinn en í gær lék hann á tveimur yfir pari í erfiðum aðstæðum en mjög hvasst var meðan leikið var. Birgir Leifur er því á pari og var hann í öðru sæti af þeim sem lokið höfðu keppni í dag en um helmingur átti enn eftir að klára. Hann fékk sex fugla á holunum átján en var óheppinn á nokkrum holum og fékk fjóra skolla.

Tónleikar (0 álit)

í Metall fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það kannast trúlega ekki margir við danska tríóið [Kikkert] og landa þeirra Opiate. Þessir tónlistarmenn eru þó nokkuð þekktir meðal unnenda raftónlistarinnar og eru að fara halda tvenna tónleika í Reykjavík. Í kvöld munu þeir spila í Þjóðleikhúskjallaranum og á morgun í tískuvöruversluninni og listgalleríinu One O One, Laugavegi 48B. Fulltrúar okkar Íslendinga á tónleikunum í kvöld verða Biogen og hljómsveitin Ampop, sem fyrir …

Skilríkjalaus poppstjarna (0 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Verslunarmannahelgin gekk án áfalla á Akureyri enda gæsla mikil þar í bæ. Sjallamenn vildu ekki vera minni menn í gæslunni og fengu konu á miðjum aldri til þess að standa í dyrunum. Hún tók hlutverk sitt afar alvarlega og spurði stóra jafnt sem smáa um skilríki. Upp úr miðnætti kom síðan ungur maður inn í andyri og ætlaði að labba beint inn. “Hvert heldur þú að þú sért að fara góði minn,” kveður þá við í kellu. “Nú inn,” svarar stráksi og er greinilega hissa. “Ja þú verður fyrst að borga og...

Viktor stendur sig vel (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
VIKTOR B. Arnarson hefur staðið sig mjög vel að undanförnu með varaliði hollenska knattspyrnufélagsins Utrecht.

Sigurjón orðinn áhugamaður á ný (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
SIGURJÓN Arnarsson, kylfingur úr GR, verður meðal keppenda á Landsmóti kylfinga.

Kjartan ekki með í kvöld? (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Samkvæmt heimasíðu knattspyrnudeildar ÍBV eru litlar líkur á því að Kjartan Antonsson, miðvörðurinn sterki hjá ÍBV, verði með í Evrópuleiknum gegn Hearts í kvöld. Kjartan meiddist á æfingu með liðinu á Selfossi í gær en lítið er vitað hversu alvarleg meiðslin eru. Þetta er mikið áfall fyrir ÍBV vegna þess að Kjartan hefur spilað stórt hlutverk í þessu liði ÍBV í sumar. Reiknað er með að Páll Almarsson verði í miðvarðarstöðunni ásamt fyrirliðanum, Hlyn Stefánssyni. Einng er öruggt að Tómas...

Kristín Elsa með forystu eftir fyrsta hring (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Kristín Elsa Erlendsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er með forystu eftir fyrsta hring í meistaraflokki kvenna á Landsmótinu í golfi. Lék hún holurnar átján á 74 höggum, þremur höggum yfir pari vallarins, en Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Ólöf María Jónsdóttir, er í öðru sæti á 75 höggum.

Panucci í viðræðum við Chelsea (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ítalski varnarmaðurinn Christian Panucci segist vona að hann geti gengið til liðs við Chelsea en umboðsmaður hans er í viðræðum við forráðamenn félagsins. Hann er nú í herbúðum Inter Milan en er ekki í náðinni hjá þjálfara liðsins, Marcelo Lippi, sem er fús til að láta hann fara fyrir 350 milljónir króna.

Helsingborg vann Inter Milan (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Fjölmargir leikir fóru fram í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Sænska liðið Helsingborg kom mjög á óvart og bar sigurorð af ítalska stórliðinu Inter Milan, 1-0 á heimavelli.

Fer Bruno Junqueira til Arrows? (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Brasilíski F3000 ökumaðurinn, Bruno Junqueira gæti verið á leiðinni til Arrows á næstunni. Hann prófar nú fyrir Williams og keppti um sætið við Button í febrúar. Arrows ætlar að nota nýju AMT vélarnar, áður Peugeot, á næsta ári og vantar því einhvern til að prófa þær strax.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok