Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

crazy
crazy Notandi frá fornöld 2.684 stig

Húkkaði Þór með Black Doctor .. skrítin veiði (0 álit)

í Veiði fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Erlingur Thoroddson, hótelstjóri á Raufarhöfn, bjargaði þremur goðum úr beljandi fljótinu neðan við Goðafoss um helgina eftir að kristnir menn höfðu hent þeim í fossinn í tengslum við vígslu Þorgeirskirkju á Ljósavatni.

"Tökum aldrei þátt í formúlunni aftur" (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ef marka má forseta franska bílarisans Peugeot munu þeir aldrei taka þátt í formúlunni aftur. Peugeot seldi framleiðslurétt á vélum sínum til Asíu og inni í þeim samningi er klásúla sem bannar þeim þátttöku í F1 næstu fimm árin.

Wurz til Toyota? (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Austurríski formúluökumaðurinn Alexander Wurz er í samningaviðræðum við Toyota um þessar mundir, en þeir hefja þátttöku í formúlunni árið 2002. Verið er að ræða um sama prófunarsæti og Toyota bauð Mika Salo, sem enn hefur ekki sagt af eða á með það.

Fær ekki að keppa um titilinn (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Forseti Ferrari bílaframleiðandans, Luca di Montezemelo segir að Michael Schumacher sé enn ökumaður liðsins númer eitt og að Rubens Barrichello fái ekki tækifæri til að reyna við heimsmeistaratitilinn.

Verðlaunaferðin til Indianapolis (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Fyrstu verðlaun Formúlukeppninnar í ár verður ferð fyrir tvo með Samvinnuferðum-Landsýn á kappaksturinn í Indianapolis sem fer fram þann 24. september. Sá sem á mest inni í bankanum að lokinni keppninni í Monza á Ítalíu hlýtur vinninginn. Sá sem hlutskarpastur verður eftir allt tímabilið, sem lýkur í Malasíu 22. október, hlýtur glæsilegt úr, Tag Heuer Quartz Chronograph frá Leonard. Kassinn utan um úrið er áritaður af Mika Hakkinen, David Coulthard og Ron Dennis. þetta er þess virði að reyna..

Napster fyrir bíómyndir? (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það er ekki bara tónlistariðnaðurinn sem þarf að kljást við steliþjófa á Netinu. Nú er kvikmyndaiðnaðurinn farinn að finna fyrir því einnig. Neðanjarðarmarkaður með stolnar myndir fer ört stækkandi og búast sérfræðingar við því að í lok ársins 2001 verði um einni milljón mynda hlaðið niður á degi hverjum. Talið er að einn aðalstaður fólks til að hittast og skiptast á myndum sé á Irkinu þar sem það sér hver á hvað.

Everton vill McManaman (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Enska úrvalsdeildarliðið Everton hefur lýst yfir áhuga sínum á að kaupa enska landsliðsmanninn Steve McManaman frá Real Madrid. McManaman, sem lék áður með Liverpool, er ekki lengur í náðinni hjá þjálfara Real Madrid og hefur verið settur á sölulista.

Liverpool gæti þurf að loka hluta Anfield Road stú (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Liverpool gæti þurft að loka hluta af stúkunni á Anfield vegna vandamáls sem fyrst kom upp í leik liðsins gegn Celtic í maí sl. Þá söfnuðust þúsundir stuðningsmanna Celtic í hina svokölluðu Anfield Road stúku og byrjaði þá hluti hennar að vagga til. Þetta virðist gerast þegar mikill fjöldi áhorfenda á svæðinu stappar niður fótunum á sama tíma. Liverpool er þegar búið að selja alla miða á opnunarleik sinn í ensku úrvalsdeildinni gegn Bradford 19. ágúst en þarf að skila inn skýrslu áður en...

Áfram efstir (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Fylkismenn sýndu glæsileg tilþrif, mikinn baráttuhug og uppskáru mark á 16. mínútu þegar þeir fengu Fram í heimsókn í Árbæinn í gærkvöld en það stóð aðeins yfir fyrstu 20 mínúturnar. Eftir það voru þeir á hælunum en sluppu fyrir horn því gestirnir voru ekki betri og Fylkir vann því 1:0. Úrslitin tryggja Fylkismönnum áfram toppsæti deildarinnar en Framarar verða að hífa upp sokkana í 8. sæti deildarinnar.

Allir óánægðir í Garðabænum (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Það fóru allir óánægðir af leik Stjörnunnar og Keflavíkur í Garðabænum í gær, ekki endilega vegna þess að leikurinn hefði verið svo leiðinlegur, heldur fyrst og fremst vegna þess að stuðningsmenn liðanna töldu að sitt lið hefði átt að fá öll stigin. Og þeir höfðu nokkuð til síns máls, en liðin skildu engu síður jöfn, 1:1.

Skallamörk Ásmundar dugðu ekki til (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
KR-INGAR sýndu að þeir gera enn tilkall til toppbaráttunnar í efstu deild karla, er þeir sigruðu sprækt lið Breiðabliks úr Kópavogi með þremur mörkum gegn tveimur í Vesturbænum í gærkvöldi. Tölurnar gefa ef til vill ekki rétta mynd af leiknum, því KR-ingar komust í 3:0, en varamaðurinn Ásmundur Arnarsson minnkaði muninn í eitt mark með tveimur glæsilegum skallamörkum undir lokin.

Verður örugglega fjörugur leikur (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Eyjamenn taka á móti skoska liðinu Hearts í Evrópukeppni félagsliða á Laugardalsvelli í kvöld (10/8) og hefst leikurinn klukkan 19. Þetta er fyrri leikur liðanna en þau mætast á ný í Skotlandi fimmtudaginn 24. ágúst.

Lék 500. deildaleikinn (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Arnór Guðjohnsen náði í gærkvöldi sögulegum áfanga þegar Valsmenn tóku á móti Skallagrími úr Borgarnesi í 1. deildarkeppninni á heimavelli sínum að Hlíðarenda. Hann varð þar með fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn frá upphafi sem leikur 500 deildaleiki á ferli sínum. Af þeim eru allir nema 41 í efstu deild í fjórum þjóðlöndum, Íslandi, Belgíu, Frakklandi og Svíþjóð.

Stoke semur við Graham Fenton (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Stoke City hefur samið við framherjann Graham Fenton til eins mánaðar og mun hann líklega leika með liðinu í fyrsta leik tímabilsins gegn Wycombe á laugardaginn. Fenton, sem er 26 ára gamall, er fyrrverandi U-21 árs landsliðsmaður Englendinga.

Liverpool gæti þurf að loka hluta Anfield Road stú (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Liverpool gæti þurft að loka hluta af stúkunni á Anfield vegna vandamáls sem fyrst kom upp í leik liðsins gegn Celtic í maí sl. Þá söfnuðust þúsundir stuðningsmanna Celtic í hina svokölluðu Anfield Road stúku og byrjaði þá hluti hennar að vagga til. Þetta virðist gerast þegar mikill fjöldi áhorfenda á svæðinu stappar niður fótunum á sama tíma. Liverpool er þegar búið að selja alla miða á opnunarleik sinn í ensku úrvalsdeildinni gegn Bradford 19. ágúst en þarf að skila inn skýrslu áður en...

Lennon áfram hjá Leicester (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Neil Lennon, miðvallarleikmaður Leicester, hefur samþykkt að framlengja samning sinn við félagið um fjögur ár. Hann hafði verið orðaður við Glasgow Celtic þar sem fyrrum knattspyrnustjóri Leicester, Martin O´Neil, er við stjórnvölinn. Hafði Leicester hafnaði tilboði frá skoska félaginu í Lennon upp á 7,5 milljónir punda.

Hörður á skotskónum (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
“VIÐ spiluðum undir getu í þessum leik. Það vantaði kraft í leik okkar og gegn öðrum liðum hefði það getað reynst dýrt,” sagði Hörður Magnússon, sem skoraði bæði mörk FH í 2:0 sigri gegn Tindastóli í Kaplakrika. FH er áfram í efsta sæti deildarinnar, hefur 28 stig, einu fleira en Valsmenn sem fylgja Hafnarfjarðarliðinu sem skugginn eftir 5:0 sigur á Skallagrími.

Winnie ekki meira með (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Allt bendir til þess að skoski varnarmaðurinn David Winnie leiki ekki meira með liðinu í sumar. Winnie hefur verið frá í nokkurn tíma, eftir að hann meiddist á æfingu KR fyrir fyrri Evrópuleikinn gegn Bröndby í Kaupmannahöfn, og entist aðeins í ríflega tuttugu mínútur gegn Blikum í gær. Ljóst er að meiðsli leikmannsins eru alvarleg og svo gæti farið að hann hafi leikið sinn síðasta leik fyrir KR

Íslandsmótið í golfi á Jaðarsvelli, Akureyri hófst (0 álit)

í Golf fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Keppni í meistaraflokki karla og kvenna á Landsmótinu í golfi hófst í morgun á Jaðarsvelli á Akureyri. Mótið stendur yfir í fjóra daga, lýkur síðdegis á sunnudaginn og verða þá krýndir Íslandsmeistarar í greininni. Ólöf María Jónsdóttir og Björgvin Sigurbergsson, bæði úr golfklúbbnum Keili, eiga titil að verja.

Isusu Trooper (12 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Þetta er einstaklega skemmtilegur bíll í akstri og frábær á vegum á hálendinu. ef ég hefði verið á öðruvísi bíl þá væri ég ekki hér.. hann er hreint frábær!

Innkalla 6,5 milljónir Firestone-dekkja af öryggis (2 álit)

í Jeppar fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Hjólbarðaframleiðandinn Bridgestone/Firestone ætlar að innkalla 6,5 milljónir dekkja af öryggisástæðum. Talið er að það megi rekja 46 dauðaslys í Bandaríkjunum til dekkjanna. Fjölmargar kvartanir hafa borist um skemmda hjólbarða, sem hafa hreinlega flagnað af á fullri ferð með hörmulegum afleiðingum. Hjólbarðategundirnar sem hér um ræðir eru Firestone ATX, ATX II og Wilderness AT og eru dekkin framleidd í Norður-Ameríku.

Svartá í Bárðardal (0 álit)

í Veiði fyrir 23 árum, 9 mánuðum
ég fór í þennan frábæra veiðitúr í Svartá í Bárðardal og átti þarna góðan dag með félaga mínum og föður við frábærar aðstæður og tel ég þetta vera með flottari silungsveiðiám landsins. Aflinn varð 13 silungar á aðeins 4 tímum með 1 stöng. Hvet ég alla sem eiga ferð um norðurlandið að kíja á ána.

Renault vélar hjá 3 liðum? (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Áætlanir Renault ganga núna út á að sjá auk Benetton, Prost og Minardi fyrir vélum. Það mun þó aðeins gerast með nýjum eigendum liðanna, en bæði liðin eru til sölu. Lið Benetton mun heita Renault frá og með 2002.

Arnar frá í nokkrar vikur (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Arnar Gunnlaugsson, Skagamaðurinn knái hjá Leicester City, gekkst í síðustu viku undir skurðaðgerð vegna meiðsla í nára og verður hann frá æfingum í að minnsta kosti tvær vikur. Arnari hafði gengið mjög vel að undanförnu og var bjartsýnn á veturinn en meiðslin í náranum komu á undirbúningstímabilinu og því er allt eins víst að Arnar verði ekki klár í slaginn hjá Leicester fyrr en eftir 4-6 vikur.

Boksic til Middlesbrough (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Middlesbrough hefur gengið frá kaupum sínum á Króatanum Alen Boksic frá Lazio. Kaupverðið er 2,5 milljónir punda, um 300 milljónir íslenskra króna. Boksic hefur þegar fengið atvinnuleyfi og getur því leikið í opnunarleik Middlesbrough á þessari leiktíð, í útileik gegn Coventry. Talið er að Boksic verði launahæsti leikmaður Bretlandseyja og hafa tölur allt að 63000 pundum (7 milljónir króna) á viku verið nefndar. Bryan Robson, stjóri liðsins, vísar þessu þó á bug.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok