Kristín Elsa Erlendsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er með forystu eftir fyrsta hring í meistaraflokki kvenna á Landsmótinu í golfi. Lék hún holurnar átján á 74 höggum, þremur höggum yfir pari vallarins, en Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Ólöf María Jónsdóttir, er í öðru sæti á 75 höggum.