Það kannast trúlega ekki margir við danska tríóið [Kikkert] og landa þeirra Opiate. Þessir tónlistarmenn eru þó nokkuð þekktir meðal unnenda raftónlistarinnar og eru að fara halda tvenna tónleika í Reykjavík. Í kvöld munu þeir spila í Þjóðleikhúskjallaranum og á morgun í tískuvöruversluninni og listgalleríinu One O One, Laugavegi 48B. Fulltrúar okkar Íslendinga á tónleikunum í kvöld verða Biogen og hljómsveitin Ampop, sem fyrir …