Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
 TILGANGUR ÁHUGAMÁLSINS 
Tilgangur áhugamálsins um heimspeki er að vera vettvangur umræðu um heimspeki og allt sem heimspeki tengist, fyrst og fremst áhugafólki um heimspeki til ánægju og yndisauka og til þess að við getum öll lært hvert af öðru. Vonast er eftir opinni en kurteisri umræðu þar sem þátttakendur umgangast hver annan af virðingu og tillitsemi.

Þátttaka undir skjánafni á huga.is er til þess að þátttakendur geti tekið þátt, sent inn fyrirspurnir, svarað eða viðrað hugmyndir með opnari huga en mögulegt væri undir nafni.

Skjánöfnin veita ekki leyfi til hegðunar sem er særandi eða á einhvern hátt neikvæð fyrir framgang umræðunnar.

Stjórnendur áhugamálsins hafa rétt til að eyða út hverju því efni sem ekki er metið falla að tilgangi áhugamálsins.

Sjá meira
 GREINAR 
11. janúar 2012 - 22:46
Þróun eða orð Jahve
Norilio (170 álit)

30. júní 2011 - 12:20
Örfá orð um félagsfræðina
frikki24 (0 álit)

29. mars 2011 - 00:21
Þriðji handleggurinn
Fimbulfamb (2 álit)

20. október 2010 - 15:54
Siðfræði handa Amador
frikki24 (6 álit)

9. september 2010 - 21:38
Ímyndun
Fimbulfamb (19 álit)

24. ágúst 2010 - 16:35
The Fountain, Spoilers
llllllllllllllll (4 álit)

31. maí 2010 - 21:35
Seinasta Trúargreinin?
llllllllllllllll (42 álit)

31. maí 2010 - 21:34
Hver eruð þið? Hvaðan komuð þið? Hvert farið þið?
diddilitli (21 álit)
 MIG VANTAR HANDKLÆÐI! - HEIMSPEKILEGAR TILVITNANIR 

Því heimskingjar dást meira að öllu og elska það, sem þeir sjá falið í myrkum orðum, og telja að allt sé satt, sem vegna fegurðar sinnar nær eyrum manna og er litað með fögrum frösum.
Títus Lúcretíus Carus (98-55 f.Kr.) Um eðli hlutanna (De Rerum Natura) I.641-644.



Sjá meira
 HEIMSPEKILEG VIDEO 

Gott viðtal við David Chalmers, nb. prófessor í heimspeki.


Notendum velkomið að finna heimspekileg video, sendið linkinn á hlolli.
 NÝTT Á HEIMSPEKIVEF HÁSKÓLA ÍSLANDS 
Get ekki náð í RSS straum
 CERTAIN DOUBT: SÍÐA UM ÞEKKINGARFRÆÐI 
Get ekki náð í RSS straum
 HVAÐ ER HEIMSPEKI? 

Hvað er heimspeki?

Heimspeki er glíma við grundvallarspurningar. Þeir sem fást við heimspeki reyna m.a. að skýra inntak og tengsl hugtaka og fyrirbæra á borð við sannleik, merkingu og tilvísun, skilning, þekkingu, skoðun, vísindi, skýringu, lögmál, tegund, samsemd, eðli, eiginleika, orsök, rök, vensl, nauðsyn, möguleika, lög, rétt, rangt, gott, illt, hamingju, dygð, skyldu, athöfn, atburð, réttlæti, réttindi, frelsi, vináttu, ást, fegurð, list og svona mætti lengi áfram telja. En heimspekin er ekki hvaða glíma sem er við þessar spurningar sem á okkur leita, heldur er hún fyrst og fremst tilraun til að fást við þessar spurningar af einurð og heilindum. Hún er ekki einber opinberun á einhverri skoðun, heldur er hún ætíð rökstudd, jafnvel þótt stundum séu rökin ósögð og undanskilin og þau verði að lesa á milli línanna.

Við þetta má bæta að heimspeki er ekki bara samansafn spurninga sem raunvísindin eiga eftir að svara, því oft veltur túlkun á niðurstöðum vísindanna beinlínis á heimspekilegri afstöðu sem liggur tilraunum og túlkun þeirra til grundvallar. Þess vegna geta vísindin einfaldlega ekki svarað öllum spurningum heimspekinnar án þess að gefa sér svörin. Á hinn bóginn mætti segja að heimspekin sé sjálf ákveðin grein eða ákveðinn þáttur vísindanna; hún hefur sjálf eitthvað fram að færa til heildarmyndar okkar af sjálfum okkur og heiminum, lífinu og tilverunni.

Eitt sinn var barn beðið að skýra það út hvað heimspeki væri. Barnið komst að því að heimspeki væri "rannsókn á möguleikum". Erfitt er að orða það betur hvað heimspekin er.

Sjá meira
 TILKYNNINGAR 
Engar nýlegar tilkynningar
 SKOÐANAKÖNNUN 
 Er ónáttúra til?



Nei
Stundum
Annað

shrafn

Athugið að aðeins innskráðir notendur geta kosið.
 MYNDIR 

Sarek sendi inn þessa mynd
yo mama

 ATBURÐIR 

Ný liðnir atburðir:
26. jan, 2008 - (0 ætluðu)
Slavoj Zizek heldur fyrirlestur í HÍ

23. nóv, 2005 - (0 ætluðu)
Heimspeki Hávamála

 HEIMSPEKI (MINNISMERKI TIL HEIÐURS MALKAV) 
Stefnuyfirlýsing mAlkAvs

Sókrates sagði að heimspeki ætti að fjalla um það líferni sem hvert okkar skyldi ástunda. Líklega yrði þetta of þröng skilgreining fyrir okkur hérna enda á hún einungis við um siðfræði.

Terry Pratchett sagði í einni bók sinni að af hverjum hundrað hugmyndum sem heimspekingar kæmu fram með væru 99 meira og minna rugl sem eðlilegu fólki myndi ekki detta í hug að hugsa tvisvar um, en hvers vegna er heimspeki svona merkileg? Það er út af þessarri einu hugmynd sem breytir lífi fólks.

Heimspeki hefur í gegnum tíðina fjallað um nær allt, allar vísindagreinar eru komnar af henni.

Eigum við þá ekki bara að spegúlera hérna?

En ég er hins vegar mAlkAv og sé um þetta áhugamál.

 SPURNINGALEIKUR 

Spurningaleikur

Svör berist EkztaC eða gthth

Leiknum er lokið. Við þökkum fyrir þátttökuna.



Sjá meira
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar