Keppni er langt komin í meistaraflokkum á þriðja keppnisdegi Landsmótsins í golfi sem fram fer á Akureyri. Íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson heldur enn forystu í karlaflokki og Kristín Elsa Erlendsdóttir er sem fyrr efst í kvennaflokki.