Eystri Rangá siglir fram úr Norðurá Eystri Rangá er í þann mund að taka forystusætið sem Norðurá hefur haldið í allt sumar. Nú undir lok vikunnar voru báðar komnar með vel á fjórtánda hundrað laxa, en miðað við gang mála, aðeins tímaspursmál hvenær Rangáin sígur fram úr, ef hún hefur ekki þegar gert það, enda hefur veiðiskapur þar gengið afar vel að undanförnu á sama tíma og Norðurá hefur dalað.