Ottó jafnaði vallarmetið og hefur þriggja högga fo Ottó Sigurðsson úr GKG hefur þriggja högga forystu eftir fyrsta hring í meistaraflokki karla á Landsmótinu í golfi, sem fram fer á Jaðarsvelli á Akureyri. Hann lék á 67 höggum í dag, fjórum höggum undir pari, og jafnaði vallarmetið. Björgvin Sigurbergsson, Íslandsmeistari frá því í fyrra, er í öðru til þriðja sæti ásamt Ingvari Karli Hermannssyni á 70 höggum.