Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Lóan mín (4 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Lóan mín Snjóað hefur í sporin Síðan þú gekkst yfir móan En ég veit þú kemur á vorin Eins og lóan. Ósköp var heimurinn grimmur Að senda þig héðan frá Og hvað sá staður er dimmur Sem þú varst sendur á. En er vetri frá er vikið Sestu í gluggann minn Og ég fanga þér jafn mikið Í hvert einasta sinn. Já er líða tekur árið Kemurðu á minn fund Og græðir hjarta sárið En aðeins stutta stund. Já þegar líður að vori Og ég heyri fuglatíst Kemuru að vörmu spori Það veit ég það fyrir víst.

Tréð (2 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Tréð Eitt lítið lauf á háu tré sem heldur því svo öruggt sé, heiminn stóra horfir á, ósköp er þar margt að sjá. Og litla laufið stolt og glatt dafnaði svo ósköp hratt, er öruggt horfði heiminn á, stóra trénu sínu frá. Tré, ég sé þér þykir vænt að bera lítið lauf svo grænt, en litla laufið einnig sér að heilsa þín æ versnandi fer. Nú hver grein þín er grá og dauf og visnað er hvert einasta lauf og ræturnar upp úr mold og grundu, því þú fellur nú á hverri stundu. Þú verndaðir og hélst mér hátt...

Loforð (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég samdi þetta fyrir nokkrum dögum, ekki eitt af mínum bestu ljóðum mínum svosem (svoldið einfalt e-n veginn..) en set það samt inn (ath! ekki byggt á eigin reynslu eins og fæst ljóða mína eru): Loforð Elsku besti pabbi minn ég kyssi þína köldu kynn og kveð þig nú í hinnsta sinn. Og get bara ekki að trúað því að kynn sem var svo hrjúf og hlý verði aldrei heit á ný. Því að kyssa þessa hrjúfu vanga er lékstu með mér daga langa gladdi lítinn stelpuanga. Og að ekkert verði eins og þá litli...

Spell (1 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
ég yrki oftast ekki á ensku, svo þetta er ekki endilega eitt af mínum bestu ljóðum, en allavega: Spell Put a spell on you reflecting on my love for you. magic wand with love I spin cast this spell from deep whith in. My mistic words will set oss free and all my wishes come to bee so with your heart you’ll learn to see couse magic makes you notess me This spell will show my love for you And end this pain you put me trough. I put a magic spell on you so you will learn to love me too.

tvær útgáfur af ljóði, bið um álit :) (13 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Jæja ég ætla að biðja ykkur um álit, bæði á þessu ljóði og svo hvor útgáfuna ég ætti að nota. Ég samdi fyrri útgáfuna fyrst en datt svo hina í hug nokkrum dögum seinna, hvor útgáfan er fallegri? Söngur Úr æðum þínum strengir liggja, strengir sem líf þitt eiga að tryggja. Streyma tár úr augum mínum, en önnur dekkri úr sárum þínum. Í brjósti þínu hjartað stynur, hjarta sem slær svo undir dynur. Heyrist andardráttur vitum þínum frá, ljúfur þykir mér söngurinn sá. Líf þitt er eitt ljúfasta...

Vonir (4 álit)

í Ljóð fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég hef verið að dunda mér stundum að semja ljóð og hef sent eitthvað hér inn áður, ákvað að senda aftur eitt sem ég var að semja: (ath. það er ekki byggt á eigin reynslu) Vonir Óskir sterkar en hljóðar Vonir stórar en tómar óp sem enginn heyrir og grátur sem ætíð ómar. Vonir fyrir næsta dag Óskir blendnar trega Ósk og ég von ber í brjósti, að þú leyfir mér að vera. Von um frið næstu ár að ekki verði fleiri tár, því sár þín eru dýpri en nokkurt dýpsta líkamssár. Vonir fyrir næsta dag Óskir...

Snillingar! Vantar hjálp ykkar (13 álit)

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 1 mánuði
Jæja, þannig er mál með vexti að ég er með Canon myndavél í láni og er búin að vera að taka mikið af myndum á hana upp á síðkastið. Þetta er Canon EOS1000F eða eitthvað svoleiðis en flassið sem maður setur ofan á er týnt og því get ég ekki notað neitt flass. Ég er byrjandi í ljósmyndun, allavega á svona flókna vél og því miður er bæklingurinn um vélina líka týndur ásamt flassinu. Allavega þá hef ég verið að taka með með stillinguna Tv og stilli töluna í glugganum upp í ca. 1000 því...

Kattholt! (24 álit)

í Kettir fyrir 19 árum, 12 mánuðum
Mér skilst að svo margir séu að leyta sér að ketti en eigi erfitt með að finna sér kött. Það ætti hins vegar alls ekki að vera svona erfitt, það eru svo ótal margar kisur sem vantar heimili. T.d. er alltaf verið að auglýsa gefins kettlinga/ketti í mogganum (Velvakanda) og á öllum gæludýraspjallrásum. Vildi bara benda á þetta þar sem sumir eru að leyta sér að kisu en finna enga gefins. T.d. í Kattholti eru örugglega hundrað kettir sem vantar heimili. Ég vinn þarna sjálfboðavinnu stöku sinnum...

þrjú ljóð sem ég samdi fyrir stuttu :) (6 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum
Fugl í búri ó, hve syngur þú fagurt og söngvar þínir gleðja okkur menn En ef þeir skildu söngva þína málleysingi minn, vissu þeir að söngurinn er grátur, sorgarljóð um drauminn þinn Drauminn um að fljúga frjáls og feginn um loftin fagurblá og syngja fyrir heiminn svo undurblítt fugl í búri ef þeir skildu söngva þína vissu þeir að búrið, er fangelsi þitt — Birki og fura Tré næturinnar faðmast og kyssast þótt annað sé birki en hitt fura Tré dagsins þykjast ekki þekkast, eitthver gæti séð til...

Svartur köttur með bláa ól týndur!! (8 álit)

í Kettir fyrir 20 árum
Litli sæti kisinn minn, Jáum er TÝNDUR og búinn að vera það í meira en mánuð. Hann týndist mánudaginn 15. mars. Við búum í Selás, Árbæ. Hann er alveg svartur á alla kanta og með bláa ól, nema að hún hafi dottið af honum, og rautt nafnspjald. Jáum er eyrnamerktur R0015 og geldur og er fjögra ára. Endilega kíkið inn í bílskúrana ykkar ef hann hefði farið þar inn og ef þið sjáið svartan kött, kíkið á ólina hans og á eyrnarnúmerið Líklegt er t.d. að hann hafi farið upp í Breiðholt en í raun gæti...

Kisi er týndur, endilega kíkið í bílskúrana ykkar! (5 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 1 mánuði
Litli sæti kisinn minn, Jáum er TÝNDUR :( Jáum er kolsvartur á alla kanta, með grængul augu. Hann er venjulegur blandaður heimilisköttur, hvorki feitur né mjög grannur. Jáum er mjög gæfur og svakalega sætur :) hann er fjögra ára og meðalstór, um 3 kg Hann er með bláa ól, nema að hún hafi dottið af honum, og rautt nafnspjald þar sem standa eftirfarandi upplýsingar: nafn: Jáum heimili: Næfurás 5 110 RVK (gæti staðið Reykás 21, við áttum einu sinni heima þar) símanúmer: 5871966 (það er skrifað...

Kúka og míga á gólfið vandamálið leyst! (16 álit)

í Kettir fyrir 21 árum
Kötturinn minn hafði oft pissað og skitið annars staðar en í kassann sinn frá því við fengum hann og var búinn að gera þetta í þrjú ár. Þegar við fórum að kaupa kattasand sem heitir Ever Clean hefur hann ALLVEG hætt þessu!(snobbkisi) útrúlegt, ég mæli sko með þessum sandi fyrir ykkur sem hafið þetta vandamál(þ.e.a.s. sem eiga kisur sem hafa þetta vandamál:) Okkur hafði alltaf verið sagt að kettir sem byrjuðu á þessu myndu aldrei hætta þessu en gátum bara ekki fenigð af okkur að láta hann...

Smá um klikk-kennara! (28 álit)

í Skóli fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sumir kennarar eru ekki allveg í lagi: Einu sinni var bara þetta venjulega skvaldur í bekknum og við vorum að láta ganga könnun milli borða (í 10.bekk) Kennarinn skipaði einni stelpunni að láta hann fá blaðið undir eins og hún sagði bara okey og lítið mál með það, en hann allt í einu, bókstaflega SNAPPAÐI! þrusaði bók á borðið og öskraði brjálað á okkur. Ég hef aldrei séð neinn svo brjálaðan í lífi mínu!! Svo einu sinni vorum við að tala saman í tíma og svoleiðis og vitið hvað hann sagði við...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok