Það þarf að hafa reglur á svona stóru ‘heimili’ en þetta þykir mér heldur strangt. Á Ak valsar maður inn og út eins og maður vill, hvort sem það er nótt eða dagur, maður hefur bara ekki hátt. Það var aldrei komið með fíkniefnahund þegar ég dvaldi þarna, eða ég veit allavega ekki af því. Og áfengið, eins og einhver nefndi þá er ekkert mál að koma þarna inn drukkinn ef maður er ekki með læti og fer beint upp til sín að sofa, það er aðalmálið. Það eru engir fangaverðir, bara ósköp indælt fólk.