Ég tók ekki bóklega hlutann með fullri vinnu EN ég var í fullum skóla, kannski svipað. Ég viðurkenni það alveg að það var svolítið erfitt, þó er ég frekar skipulögð manneskja. Það var ekki mikill tími fyrir margt annað en skólann og svo bóklega námið, en með skóla fylgir svolítil heimavinna en maður tekur vinnuna ekki alltaf heim. Persónulega eyddi ég samt mikið meiri tíma í bóklega einkaflugmannsnámið heldur en í skólann. Hvað verklega hlutann varðar, þá var ekki mikill tími fyrir flug á...