Jæja, svoleiðis standa málin að ég er komin með ógeð af hárinu mínu en á ný.
Ég er ekki að tala um litinn, mér er svosem sama um litinn í augnablikinu. Heldur er ég að meina stílinn.

Ég er með svona ömurlega slétt og dautt hár. Ég fer að lúlla með blautt hár og vakna með það spegilslétt.
Ef að mér dettur í hug að krulla á mér hárið eða allavegana láta það virðast vera lifandi með sléttujárni verður það búið að leka úr eftir í mesta lagi tvo klukkutíma.

Hárið mitt er svona millimetra yfir öxlunum, og því og stutt til að hafa snúð eða þessháttar, og of sítt fyrir eitthverjar svona.. stutt hár crazy greiðslur með geli n'sutch..

Ég er langt frá því að vera hugmyndarík þegar að það kemur að hárinu mínu, svo að.. eitthver hjálp hér?