Það sem þú talar um í grein þinni er hassneysla í óhófi, og það vita það allir vel að öll misnotkun getur verið hættuleg. Má ég til dæmis benda þér á þau heilbrigðisvandamál sem fylgja óhóflegri áfengisnotkun. Þau eru í dag mun meira vandamál fyrir samfélagið en hassreykingar. Ég er ekki að segja að það eigi endilega að lögleiða kannabis efni, en þú getur ekki dæmt allt annað fólk út frá eigin reynslu. Þær alhæfingar hjá þér að fólk sem reykir hass muni gjalda þess síðar, og það sé það eina...